Kvikmyndahátið fluguveiðimannsins Karl Lúðviksson skrifar 26. febrúar 2014 19:48
RISE kvikmyndahátiðin verður á dagskrá í Bíó Paradís þann 6. mars næstkomandi en þetta er fjórða árið sem þessi hátið fer fram. Kristján Benediktsson hjá Iceland Angling travel, eða Stjáni Ben eins og hann er vanalega kallaður er skipuleggjandi hátíðarinnar en hún hófst þannig að hann var við veiðar í Minnivallalæk ásamt Nick Reygart sem er eigandi hennar og tókust með þeim góð kynni, en Nick hefur veitt nokkuð á Íslandi og hefur eins og margir erlendir veiðimenn fallið fyrir fjölbreytni veiðinnar hér á landi. Úr varð að Kristján tók að sér skipulagningu RISE á Íslandi. Kristján hefur sjálfur mikla veiðireynslu enda hefur hann veitt frá unga aldri og starfað sem leiðsögumaður síðan 2007 og verið með eigin rekstur í veiðileiðsögn og bókunum síðan 2009. Myndirnar sem verða kynnar á þessari hátið eru Tributeris en Siggi Héðins er í henni og myndin er að hluta tekin upp á Íslandi. Leviathan sem er nýjasta mynd Nick Reygart og Blood knot, Black Water Devils gold. Það er því miður of seint að ná sér í miða enda er uppselt á hátíðina en þess má líka geta að það verður glæsileg veiðisýning í forsal Bíó Paradísar fyrir sýningu og þar komast allir að skoða þó þeir séu ekki með miða á myndirnar. Á sýningunni verða veiðibúðir, veiðileyfasalar og fleiri að kynna sínar vörur og þjónustu.
Stangveiði Mest lesið Veiðikeppnin litla Veiði Opin fyrirlestur um hreindýraveiðar Veiði Spá góðu smálaxaári Veiði Veiðislóð 3 tbl. komið út Veiði Laxá í Dölum enn ein áin til að opna með glæsibrag Veiði Gleymir stund og stað við árbakkann Veiði Fín sjóbleikjuveiði í Hraunsfirði Veiði 70-90 laxa dagar í Eystri Rangá Veiði Vatnsdalsá með 76 laxa og 83 sm meðallengd Veiði Tími stóru hausthængana að bresta á Veiði