Harmageddon

Lýðræði, kynjaskipting, skólabúningar og sköpun í skólum Hjallastefnunnar

Andri Þór Sturluson skrifar
Margrét Pála.
Margrét Pála.
Höfundur Hjallastefnunnar, Margrét Pála, mætti galvösk í viðtal við Harmageddon til að ræða skólamál. Margrét byrjaði í Hafnarfirði með fullt af allskonar hugmyndum og til í að prófa nýjungar í skólastarfi. Síðar fékk þetta módel nafnið Hjallastefnan.

Kynjaskiptingin kom fram vegna þess að stefnan vill leggja áherslu á hvert einasta barn og fyrir hana tók Margrét eftir því að „stelpur týndust og strákar komust upp með hluti sem hægt hefði verið að stoppa.“ Með kynjaskiptingunni segir hún auðveldara að veita öllum nóga athygli.

Margrét kynnir starfið, ræðir það sem er öðruvísi en maður á að venjast og áhugafólk um skólamál getur hlustað á viðtalið í heild sinni hér.








×