Viðskipti innlent

Íslenskt hugvit í snjóvélum í Sotsjí

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Snjógerðarvélin Fulltrúar Stálnausts í Noregi ásamt kollegum sínum með vélina góðu í baksýn.
Snjógerðarvélin Fulltrúar Stálnausts í Noregi ásamt kollegum sínum með vélina góðu í baksýn. Vísir/Stálnaust
„Við sendum tvo menn út til Noregs til að smíða tanka til að búa til snjó,“ segir Þorsteinn Birgisson, framkvæmdastjóri Stálnausts í Hafnarfirði.

Þorsteinn og félagar hans hjá Stálnausti unnu að þróun og smíði véla sem framleiða snjó sem helst er notaður við iðkun skíðaíþrótta og nú á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí.

Snjóvélin samanstendur af krapavélum frá Kanada og tanki sem aðskilur snjó frá vökva.

„Þeir settu krapann í tank og þar tókum við við, blönduðum í krapann vatni þar til út kom heill snjór. Krapinn er hins vegar búinn til með saltupplausn sem er keyrð í gegnum vélarnar og síðan aðskilin í tanknum, upplausnin hringkeyrð og þannig færst ferskur snjór,“ segir Þorsteinn. Þeir tóku þátt verkefninu frá upphafi og einnig hreinsunarferlinu þar til snjórinn var orðinn hreinn og tilbúinn til notkunar.

Það var norska fyrirtækið Snow Smart sem fékk Þorstein og félaga til liðs við sig í þessari framleiðslu.

Vélarnar voru síðan seldar frá Noregi til Finnlands sem leigir Rússum vélarnar fyrir Ólympíuleikana, sér í lagi við skíðastökk.

Vélarnar sem Stálnaust smíðaði hafa sést á öldum ljósvakans undanfarið við sýningar frá leikunum en fáir sem vita að íslenskt hugvit hafi komið að framleiðslu þeirra.

Tæknin sem notuð er er ný af nálinni.

„Það sem kom skemmtilega á óvart er að þessi snjór þolir töluvert hærra hitastig en venjulegur snjór, en það er vegna þessara ákveðnu saltupplausna sem þrýst er í gegnum þar til gerða „jektora“,“ segir Þorsteinn.

Snjóvélarnar geta framleitt 7.500 rúmmetra af ferskum snjó á sólarhring og eru færanlegar á tveimur svokölluðum „trailerum“.

Stálnaust ehf. var stofnað árið 1998 og sérhæfir sig í smíði á færiböndum og ýmsum lausnum fyrir matvælavinnslu og innréttingar hvort sem er í hesthús eða eldhús ásamt því að annast smíði úr ryðfríu efni og áli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×