Viðskipti innlent

Áfengissala eykst

Stefán Ó. Jónsson skrifar


Áfengissala jókst í janúar að raunvirði um 13,2% frá fyrra ári. Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknarseturs verslunarinnar.

Þegar gert hefur verið ráð fyrir því að í ár var einum fleiri föstudegi en í fyrra var aukningin 4,3%. Hækkun áfengisgjalds virðist ekki hafa dregið úr sölunni því áfengisverð hækkaði á tímabilinu um 1.2%.

Samdráttur varð þó í veltu skóverslunar að raunvirði um 12,5%. Verðhækkanir á skóm gætu hafa haft áhrif, því verðlagsbreytingar á skófatnaði skera sig úr öðrum verðhækkunum. Verð á skóm hækkaði um 12,6% á milli ára samkvæmt verðmælingum Hagstofunnar.

Í janúar jókst velta í húsgagnasölu um 27,8% að raunvirði frá fyrra ári og sala á svokölluð hvítum raftækjum (þvottavélum, kæliskápum, eldavélum o.s.frv.) um 18,8% og því ljóst að landsmenn endurnýja nú hjá sér húsgögn og heimilstæki í miklum móð.

Sala á snjallsímum heldur áfram að aukast en á milli ára var aukning 54,2% að raunvirði.

Samanburður á raunveltu síðustu þriggja mánaða  og sömu þrjá mánuði fyrir ári leiðir í ljós að velta dagvöru jókst um 3,8%, velta áfengis um 4,9%, fataverslunar um 0,6% og húsgagna um 14,4%.

Greiðslukortavelta erlendra ferðmanna hérlendis jókst einnig mikið en þeir versluðu í janúar í ár fyrir 5,7 milljarða króna sem er aukning um 26.2% milli ára. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×