Áfengissala eykst Stefán Ó. Jónsson skrifar 14. febrúar 2014 13:59
Áfengissala jókst í janúar að raunvirði um 13,2% frá fyrra ári. Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknarseturs verslunarinnar. Þegar gert hefur verið ráð fyrir því að í ár var einum fleiri föstudegi en í fyrra var aukningin 4,3%. Hækkun áfengisgjalds virðist ekki hafa dregið úr sölunni því áfengisverð hækkaði á tímabilinu um 1.2%. Samdráttur varð þó í veltu skóverslunar að raunvirði um 12,5%. Verðhækkanir á skóm gætu hafa haft áhrif, því verðlagsbreytingar á skófatnaði skera sig úr öðrum verðhækkunum. Verð á skóm hækkaði um 12,6% á milli ára samkvæmt verðmælingum Hagstofunnar. Í janúar jókst velta í húsgagnasölu um 27,8% að raunvirði frá fyrra ári og sala á svokölluð hvítum raftækjum (þvottavélum, kæliskápum, eldavélum o.s.frv.) um 18,8% og því ljóst að landsmenn endurnýja nú hjá sér húsgögn og heimilstæki í miklum móð. Sala á snjallsímum heldur áfram að aukast en á milli ára var aukning 54,2% að raunvirði. Samanburður á raunveltu síðustu þriggja mánaða og sömu þrjá mánuði fyrir ári leiðir í ljós að velta dagvöru jókst um 3,8%, velta áfengis um 4,9%, fataverslunar um 0,6% og húsgagna um 14,4%. Greiðslukortavelta erlendra ferðmanna hérlendis jókst einnig mikið en þeir versluðu í janúar í ár fyrir 5,7 milljarða króna sem er aukning um 26.2% milli ára.
Mest lesið Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira