Viðskipti erlent

Franskar sjónvarpsstöðvar vilja kæfa Netflix í fæðingu

Jóhannes Stefánsson skrifar
Franskar sjónvarpsstöðvar kæra sig ekki um að Francis Underwood og félagar verði til sýnis á sjónvarpsskjám landsmanna að stöðvunum forspurðum.
Franskar sjónvarpsstöðvar kæra sig ekki um að Francis Underwood og félagar verði til sýnis á sjónvarpsskjám landsmanna að stöðvunum forspurðum. Vísir/AFP
Forstjórar stærstu einkareknu sjónvarpsstöðva Frakklands vilja að ríkið grípi tafarlaust í taumana svo að erlendir samkeppnisaðilar komist ekki á þarlendan markað. Ástæðan er sú að Google, Apple og Netflix hyggjast bjóða upp á þjónustu sína í Frakklandi á næstu misserum.

Forstjórar TF1, Canal+ og M6 hafa lýst yfir miklum áhyggjum vegna þessa og hafa óskað eftir fundi með menningarmálaráðherra Frakklands, Aurelie Filipetti, til að ræða „aðkallandi aðgerðir“ til að endurskipuleggja geirann.

Þeir segjast hafa miklar áhyggjur af „umróti sem hlotist geti af tilkomu nýrra aðila“ sem hafa verið leiðandi í að bjóða upp á afþreyingarefni heimshorna á milli. Þeir segja að aðgerðaleysi stjórnvalda í málinu hafi mjög neikvæð áhrif á geira sem mikil stöðnun hefur ríkt í.

Þá gagnrýna þeir harðlega viðleitni þessara fyrirtækja til að lágmarka skattgreiðslur sínar, sem þeir segja vera fráleita.

The Local greinir frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×