Tilnefndur til Eddunnar á tólf ára afmælisdaginn Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 30. janúar 2014 15:44 Ágúst er hæstánægður með þessa óvæntu tilnefningu á afmælisdaginn. MYND/EINKASAFN/SAMSETT
Ágúst Örn B. Wigum er einn þeirra sem er tilnefndur til Edduverðlaunanna í ár fyrir leik í aðalhlutverki. Hann fékk tilnefninguna fyrir leik sinn í stuttmyndinni Hvalfjörður. Tilnefningarnar voru kynntar í hádeginu og Ágúst á einmitt afmæli dag, hann er 12 ára. „Það er bara mjög skemmtilegt að vera tilnefndur,“ segir Ágúst. „Þetta kom mér mjög mikið á óvart en ég vissi ekki að börn gætu fengið tilnefningu og ég frétti því af þessu fyrst í dag.“ Hvalfjörður fjallar um samband tveggja bræðra sem búa á litlum sveitabæ ásamt foreldrum sínum. Skyggnst er inn í heim þeirra bræðra frá sjónarhorni yngri bróðursins sem leikinn er af Ágústi. Leikstjóri myndarinnar er Guðmundur Arnar Guðmundsson.Ágúst í hlutverki yngri bróðursins í stuttmyndinni Hvalfirði.Ágúst var 10 ára þegar hann lék í myndinni. Áður hafði hann leikið í kvikmyndinni Eldfjall. Hann fór einnig með hlutverk lítils munaðarleysingja í leikritinu Oliver Twist sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu og hann lék einnig í Macbeth. „Mér finnst alltaf gaman að leika,“ segir Ágúst sem langar rosalega til að verða leikari. Ágúst hefur búið til sínar eigin stuttmyndir sem hann og vinir hans hafa leikið í. Myndirnar hefur hann aðallega sýnt vinum sínum og fjölskyldu. Honum finnst líka gaman í körfubolta og á hjólabretti. Í tilefni dagsins er Ágúst á leiðinni út að borða á Hamborgarafabrikkunni og svo ætlar hann að sjá The Secret Life of Walter Mitty í bíó. Hann er búinn að fá nokkra pakka í dag. „Ég fékk körfuboltaskó, bíómyndir, húfu og pening,“ segir Ágúst sem er hæstánægður með afmælisdaginn, gjafirnar og þessa óvæntu tilnefningu.
Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Skikkar ríkislögreglustjóra til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fleiri fréttir Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar ríkislögreglustjóra til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Sjá meira