Harmageddon

Sannleikurinn: Forsetinn notaði orðið samstaða 17 sinnum í ávarpi sínu

Andri Þór Sturluson skrifar
Öðrum samstöðu Norðurslóða landsins voru algengustu orðin í ávarpi forsetans.
Öðrum samstöðu Norðurslóða landsins voru algengustu orðin í ávarpi forsetans. /Þórlaug Agústsdóttir
Samstaða íslensku þjóðarinnar var Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, ofarlega í huga í nýársávarpi hans. Hann notaði orðið 17 sinnum. Orðið hefur ekki verið notað jafn oft í ræðu síðan í seinni heimstyrjöldinni.

Ólafur hvatti landsmenn til að standa saman og sagði að fátækt væri smánarblettur á íslensku samfélagi. Þegar hann talar um landsmenn á hann þó ekki við konuna sína sem flutti lögheimili sitt til Bretlands á seinasta ári og þarf því ekki að borga skatta hér af auðæfum sínum.

Ef Dorrit myndi greiða skatta hér á landi, verandi nú forsetafrú Íslands og með ríkari konum Bretlands, væri hægt að segja að forseta Íslands væri alvara þegar hann talar um samtöðu við þjóðina. Forsetahjón sem koma sér hjá því að borga skatta hér á landi eru varla að sýna neina samstöðu með þjóðinni.



Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu þar sem ríkir góð samstaða um að pönkast í forsetanum.








×