Greiða fyrirfram af AGS láni Samúel Karl Ólason skrifar 19. desember 2014 09:13 Heildarfjárhæð lánsins frá AGS var um 253 milljarðar króna og eftir fyrirframgreiðsluna verða eftirstöðvar lánsins um 43 milljarðar. Vísir/Pjetur
Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að greiða fyrirfram hluta lána frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Lánin voru fengin í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda en sú áætlun var studd af AGS. Þegar greiðslunni er lokið hafa stjórnvöld endurgreitt 83 prósent af láninu. Um er að ræða endurgreiðslur að jafnvirði um 50 milljarða króna, sem upphaflega voru á gjalddaga á árinu 2015. Þetta kemur fram á vef Seðlabankans. Heildarfjárhæð lánsins frá AGS var um 253 milljarðar króna og eftir fyrirframgreiðsluna verða eftirstöðvar lánsins um 43 milljarðar. „Ákvörðunin um fyrirframgreiðslu er tekin í tengslum við skuldastýringu sem miðar að því að greiða niður lán til skemmri tíma. Við ákvörðunina er tekið mið af tiltölulega rúmri lausafjárstöðu Seðlabanka Íslands, meðal annars vegna inngripa á innlendum gjaldeyrismarkaði,“ segir í tilkynningu Seðlabankans. Þá mun endurgreiðslan hafa áhrif á skuldir Seðlabankans, en ekki á skuldir ríkissjóðs þar sem lánið var tekið af Seðlabankanum. Gjaldeyrisforði Seðlabankans mun dragast saman, en í lok nóvember var hann um 566 milljarðar króna.
Mest lesið Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Árni Oddur tekur við formennsku Viðskipti innlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Útilíf og Alparnir sameinast undir merkjum Útilífs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Sjá meira