Opna dekurbar til heiðurs Skúla fógeta Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. desember 2014 13:35
Reykvíkingar fá nýtt öldurhús í barmenningu miðbæjarins í kvöld þegar Skúli Craft bar opnar klukkan 18. Staðurinn er staðsettur við Aðalstræti 9 í húsæðinu sem skilur að Fógetagarðinn kenndan við Skúla Magnússon og Ingólfstorg. „Við ætlum að vera með rosalega gott úrval af góðum bjór, afskaplega gott, og þeir sem vilja ekki bjór geta komið hérna í gríðarlega gott úrval af léttvíni og sterku víni. Þetta verður algjör dekurstaður,“ segir Stefán Magnússon, oft kenndur við Eistnaflug. Stefán er rekstrarstjóri nýja barsins en meðal eigenda er Birgir Jónsson, trommari í Dimmu og aðstoðarforstjóri WOW air.Barþjónar staðarins voru að nostra við kranana í hádeginu. Nýr bjór frá Borg verður á boðstólnum í kvöld en hann er enn sem komið er ónefndur.Vísir/KTDBjórmekka í miðbænum Varla hefur farið framhjá nokkrum manni hve hratt bjórflóran hefur vaxið á Íslandi undanfarinn áratug eða svo. Úrvalið af bjór hefur margfaldast og margir orðnir bruggarar og sérfræðingar. „Þetta hefur gerst dálítið hratt síðustu ár og rosalega bjórmenning núna. Gríðarlegt magn af bjórnördum að koma niður úr trjánum sem er ofboðslega gaman. Að sjá þetta lið hræra upp úr glösunum og þefa. Þetta er bara eins og með vínið, algjörar spekúleringar en svo geturðu líka bara komið í þægilegan einfaldan bjór,“ segir Stefán. Hann minnir á að í miðbænum hafi myndast einskonar bjórhimnaríki.Stefán og Skúli í góðum gír.Vísir/KTD„Miðbærinn er orðinn bjórmekka. Skúli er hérna, Micro í næsta húsi og Frederiksen beint á móti Húrra. Hér er risabjórsvæði.“ Ber að ofan í kvöld Blaðamaður fór í óvænta heimsókn á barinn í hádeginu og komst að því að Stefán nokkrum mínútum fyrr fengið leyfisbréfið í hendurnar. Stefnt hafði verið á að opna staðinn fyrr en það tafist eins og gengur og gerist. Áður var rekinn spilakassasalur, kenndur við Háspennu, í húsnæðinu þar sem nú er búið að innrétta barinn. Stefán á ekki von á því að um verði að ræða háspennubar. „Ég held að þetta verði mjög notalegt. Þetta er þannig innréttað og flottur staður. Þú dettur bara inn í rólegheitagír og hefur það gott.“ Aðspurður hvort eitthvað sérstakt verði á dagkskrá í kvöld í tilefni opnunar, hvort hann muni klæðast jólasveinabúningi eða annað segir Stefán: „Ég verð jafnvel ber að ofan ég er svo ánægður með þetta.“
Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Sjá meira