Hertu reglur vegna gruns um misnotkun Eva Bjarnadóttir skrifar 8. janúar 2014 07:00 Leikskóli FS. Mynd/Vilhelm
Félagsstofnun stúdenta (FS) herti reglur um dagvistunarpláss fyrir stúdenta Háskóla Íslands þegar grunur varð uppi um misnotkun á þjónustu ungbarnaleikskóla stofnunarinnar. Stúdentar þurfa nú að sýna fram á lágmarks námsframvindu. Reykjavíkurborg herti einnig reglur um námsmannaafslátt vegna dagvistunar og þurfa nú báðir foreldrar að vera í námi en áður nægði að annað foreldrið væri námsmaður. Um helmingsfækkun hefur orðið á umsóknum um námsmannaafslátt í Reykjavík frá því að breytingarnar tóku gildi árið 2011. „Eftir að við heyrðum sögusagnir um að fólk væri að skrá sig í háskólann til að koma börnum í leikskólana hertum við skilyrðin fyrir leikskólavist,“ segir Rebekka Sigurðardóttir, upplýsingafulltrúi FS. „Nú er gerð krafa um lágmarks námsframvindu, svipað og hjá Stúdentagörðum, til að tryggja að þetta séu örugglega stúdentar sem séu þarna með börnin, en ekki fólk á vinnumarkaði,“ segir Rebekka, en hún segir langan biðlista vera eftir leikskólaplássum.Rebekka Sigurðardóttir, upplýsingafulltrúi FSHertar reglur tóku gildi um mitt ár 2012. Þar er gert ráð fyrir því að foreldri ljúki að minnsta kosti 40 einingum á ári, eða tveir þriðju hlutar þess sem viðkomandi háskóladeild telur eðlilega framvindu fyrir eins árs nám, segir Rebekka, en lágmarkið er átján einingar á haustönn. Þó eru veittar undanþágur ef ástæða þykir til. „Þessar reglur voru teknar upp að gefnu tilefni, enda viljum við þjóna stúdentum sem eru í fullu námi,“ bætir Rebekka við. Námsmenn sem búa í Reykjavík fá námsmannaafslátt vegna dagvistunar, en frá því árið 2011 hafa báðir foreldrar þurft að vera í fullu námi til að njóta afsláttarins. Ólíkt leikskólum FS þurfa foreldrar barna á öðrum leikskólum hins vegar ekki að sýna fram á lágmarks námsframvindu og geta því látið nægja að skrá sig í nám. Námsmenn greiða rúmar 26.000 krónur á mánuði hjá leikskólum FS, fái þeir niðurgreiðslu Reykjavíkurborgar. Þegar eingöngu annað foreldrið er í námi er gjaldið aftur á móti afar hátt eða rúmar 55.000 krónur á mánuði. Margir foreldrar velja samt sem áður að nýta sér þjónustu FS, enda önnur dagvistun einnig kostnaðarsöm og víða skortur á öðrum úrræðum fyrir þennan aldurshóp barna.Helmingsfækkun hjá Reykjavík Helmingsfækkun varð á umsóknum um námsmannaafslátt vegna dagvistunar eftir að Reykjavíkurborg breytti reglum, samkvæmt upplýsingum frá skóla- og frístundassviði Reykjavíkurborgar. Reykjavíkurborg niðurgreiðir dagvistun fyrir námsmenn, jafnt hjá leikskólum borgarinnar, sjálfstætt starfandi leikskólum og dagforeldrum. Árið 2010 ákvað borgarstjórn Reykjavíkur að gera breytingar á gjaldskrá leikskóla og var námsmannaafsláttur sambúðarfólks og hjóna, þar sem annað var í námi, felldur niður. Nú njóta um 250 námsmenn í Reykjavík afsláttar, þar af eru hundrað með börn í sjálfstætt starfandi skólum og hjá dagforeldrum. Námsmenn þurfa að leggja fram námsvottorð, en engin krafa er gerð um þeir sýni fram á eðlilega námsframvindu, líkt og gert er hjá Félagsstofnun stúdenta.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira