iPhone 5 símar uppseldir á Íslandi Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 8. janúar 2014 16:20 Salan á iPhone nam í desember um 40% af allri farsímasölu Vodafone.
iPhone 5S símar eru uppseldir hér á landi. Að sögn Hrannars Péturssonar, framkvæmdastjóra samskiptasviðs Vodafone, hefur síminn ekki verið fáanlegur í verslunum fyrirtækisins síðan fyrir jól en sömu sögu er að segja af öðrum söluaðilum hér á landi. Von er á nýrri sendingu til landsins í lok þessarar viku og þegar er búið að panta stóran hluta af þeim símum. Hrannar segir áhugavert að skoða hvenær símarnir voru virkjaðir. Stór hluti 5S símanna var virkjaður fyrir jól meðan 5C og 4S, sem er eldri gerð, voru flestir virkjaðir eftir jól. „Það bendir til þess að þeir sem keyptu dýrari gerðina hafi annað hvort ekki getað beðið fram að jólum eða verið að kaupa símana fyrir sjálfa sig,“ segir Hrannar. Salan á iPhone nam í desember um 40% af allri farsímasölu Vodafone og er hann orðinn söluhæsti síminn. Mikil aukning varð í sölu á iPhone símum um miðjan desembermánuð þegar Vodafone hóf formlegt samstarf við Apple um sölu símanna hér á landi. Áður fyrr var mikill meirihluti þessa vinsælu símtækja keyptur erlendis en í kjölfar samstarfsins var hægt að bjóða símana hér á landi á allt að 35% lægra verði en áður. Færri gátu keypt iPhone 5S síma fyrir jól en vildu en eftir að símarnir seldust upp var talsvert um að fólk keypti iPhone gjafakort til að setja í jólapakkann til sinna nánustu.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira