iPhone lækkar um allt að fimmtíu þúsund krónur Freyr Bjarnason skrifar 29. nóvember 2013 07:00 Fjarskiptafyrirtækin ætla að bjóða upp á snjallsímana iPhone 5s og iPhone 5 milliliðalaust frá og með 13. desember. fréttablaðið/ap
Fjarskiptafyrirtækin Vodafone, Síminn og Nova munu frá og með 13. desember bjóða upp á snjallsímana iPhone 5s og iPhone 5c milliliðalaust. Hingað til hafa fyrirtækin keypt símana í gegnum erlenda milliliði en núna þarf þess ekki lengur vegna samninga sem hafa verið undirritaðir við Apple. Símarnir verða því fáanlegir á Íslandi á svipuðum tíma og í stærri löndum Evrópu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins lækkar útsöluverð iPhone alls staðar, og getur sú lækkun numið allt að fimmtíu þúsund krónum. Aðspurð segist Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova, vera mjög ánægð með samninginn. „Við hjá Nova höfum unnið að því um langt skeið að ná þessum beina samningi við Apple og það er mikið fagnaðarefni að það hafi nú tekist. iPhone er vinsælasti farsíminn hjá viðskiptavinum Nova en nú þegar eru yfir fjörutíu þúsund iPhone-farsímar í notkun á farsímakerfi Nova,“ segir hún. „Við erum að bjóða mjög gott verð á þessum símum í dag. Þeir munu lækka eitthvað í verði en mismikið eftir tegundum. Við getum ekki boðið símana á sama verði og í Ameríku heldur verður það nær því sem þekkist á Norðurlöndum.“ Samkvæmt heimildum blaðsins gerir samningur Vodafone við Apple að verkum að viðskiptavinir fyrirtækisins geti notfært sér 4G-virkni iPhone og iPad sem skilar sér í auknum gagnaflutningshraða. Hingað til hefur gagnaflutningshraði tækjanna verið takmarkaður við 3G. Hvað varðar 4G-mál hjá Nova, segir Liv undir Apple komið að opna fyrir þjónustuna. „Það hefur þegar verið gert fyrir iPad og við erum að vona að það verði gert fyrir iPhone í desember. Nova er eina farsímafyrirtækið sem býður upp á 4G-þjónustu í farsíma. Við vitum að viðskiptavinir okkar bíða spenntir eftir að fá 4G í iPhone,“ segir hún.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent