Inga Birna nýr framkvæmdastjóri Kosmos & Kaos Atli Ísleifsson skrifar 14. október 2014 12:51 Kristján Gunnarsson, Inga Birna Ragnarsdóttir og Guðmundur Bjarni Sigurðsson.
Inga Birna Ragnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjá vefstofunni Kosmos & Kaos. Inga Birna starfaði áður sem framkvæmdastjóri og aðstoðarforstjóri flugfélagsins WOW air og í stjórnunarstöðum hjá Icelandair, Flugfélagi Íslands og 365 miðlum. Í tilkynningu segir að Inga Birna hafi áralanga reynslu af rekstri, sé viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Inga Birna er einnig varamaður í stjórn Íslandsstofu og hefur setið í ýmsum stjórnum og nefndum síðastliðin ár. „Þetta er spennandi tækifæri, ég hlakka mikið til að vinna með hæfileikaríku fólki hjá Kosmos & Kaos og taka á móti nýjum áskorunum í leiðinni. Rekstur Kosmos & Kaos hefur gengið mjög vel, tækifærin eru okkar og við ætlum að grípa þau,“ segir Inga Birna. Kristján Gunnarsson, einn stofnenda og viðskiptastjóri Kosmos & Kaos segir Ingu Birnu hafa sem stjórnandi reglulega verið í hlutverki kaupanda á þjónustu vefhönnunarfyrirtækja og þekkir þarfirnar mjög vel. „Inga Birna hefur líka gríðarlega reynslu af rekstri og uppbyggingu fyrirtækja. Þetta er rétti tíminn til að láta manneskju með mikla rekstrarreynslu fá framkvæmdastjórahattinn,“ segir Kristján. „Kristján Gunnarsson og Guðmundur Bjarni Sigurðsson hafa rekið Kosmos & Kaos saman frá upphafi. Í sumar var greint frá því að bandaríska fyrirtækið UENO LLC. hafi keypt þriðjungshlut í fyrirtækinu og styrkti sú fjárfesting félagið mjög. Ráðning Ingu Birnu í stól framkvæmdastjóra kemur í kjölfar þessa og er liður í stækkunaráformum sem unnið er að í samvinnu við UENO. Kosmos & Kaos hefur verið leiðandi á sviði vefhönnunar, vefþróunar og stafrænnar markaðssetningar. Síðastliðin ár hefur Kosmos & Kaos hlotið fjölda viðurkenninga og tilnefninga. Fyrirtækið hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð og er virkur meðlimur í FESTU, miðstöð um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. Kosmos & Kaos hefur einnig kappkostað að bjóða starfsfólki sínu upp á gott starfsumhverfi og krefjandi verkefni og hefur í því skyni mótað sérstaka hamingjustefnu fyrirtækisins. Starfsmenn Kosmos & Kaos eru nú 12 talsins en fyrirtækið var stofnað fyrir fjórum árum og hefur á því tímabili hannað og forritað vefi fyrir mörg stærstu og framsæknustu fyrirtæki landsins,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Falið að gera Reykjavík aðgengilegri Viðskipti innlent Bretland heldur toppeinkunn sinni Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira