N1 endurgreiðir hluthöfum 3.860 milljónir króna Óli Kristján Ármannsson skrifar 23. október 2014 07:00 Eggert Þór Kristófersson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs N1, á uppgjörsfundi hjá félaginu. Vísir/GVA
Hlutafé N1 verður lækkað um 30 prósent, eða um 300 milljónir króna að nafnvirði, gangi eftir tillaga sem samþykkt var á fundi hluthafa félagsins á þriðjudag. Auk hlutafjárniðurfærslunnar var samþykkt að færa yfirverðsreikning hlutafjár félagsins niður um tæpa 3,6 milljarða króna. „Samtals verður hlutafé félagsins því lækkað um kr. 3.859.628.000 og mun fjárhæðin verða greidd út til hluthafa félagsins hlutfallslega í samræmi við hlutafjáreign þeirra í félaginu í lok dags þann 28. nóvember 2014,“ segir í kauphallartilkynningu félagsins. Eggert Þór Kristófersson, fjármálastjóri N1, segir aðgerðina í samræmi við þá stefnu sem mörkuð hafi verið við skráningu félagsins í Kauphöllina, að eiginfjárhlutfall félagsins yrði um 40 prósent. Í síðasta árshlutauppgjöri félagsins var hlutfallið 51,1 prósent. „Það var mat stjórnar félagins að þetta væri styðsta leiðin til að nálgast markmið félagsins um fjármagnsskipan,“ segir Eggert. Aðgerðina segir hann ekki vera eins og arðgreiðslu sem greidd sé af hagnaði ársins á undan, heldur sé þarna verið að endurgreiða hluthöfum fé sem sett hafi verið í félagið. „N1 er fyrsta íslenska félagið í Kauphöllinni sem fer þessa leið,“ segir hann. Endurgreiðslan geti átt sér stað að fenginni heimild ríkisskattstjóra. Tilkynna á um endanlegar dagsetningar til Kauphallar þegar þær liggja fyrir. Fyrirferðamestu hluthafarnir á lista yfir 20 stærstu eru lífeyrissjóðir og fjármálafyrirtæki. Lífeyrissjóður verslunarmanna er langstærsti hluthafinn með yfir 14 prósenta hlut, næstum helmingi stærri en hluthafarnir í næstu sætum.Stærstu hluthafar N1 samkvæmt lista Kauphallarinnar um 20 stærstu í byrjun októbermánaðar..
Mest lesið Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Falið að gera Reykjavík aðgengilegri Viðskipti innlent Bretland heldur toppeinkunn sinni Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira