Hagnaður Haga á öðrum ársfjórðungi rúmlega tveir milljarðar Stefán Árni Pálsson skrifar 23. október 2014 19:19 Vísir / Valgarður
Árshlutareikningur Haga hf. fyrir annan ársfjórðung 2014/15 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi í dag en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2014 til 31. ágúst 2014. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins, KPMG ehf. Fram kemur í tilkynningunni að vörusala tímabilsins hafi numið 38.363 milljónum króna, samanborið við 37.794 milljónum króna árið áður. Söluaukning félagsins sé 1,5%. Hækkun 6 mánaða meðaltals vísitölu neysluverðs milli rekstrarára var 2,3%. Framlegð félagsins var 9.265 milljónir króna, samanborið við 9.115 milljónir króna árið áður eða 24,15% samanborið við 24,12%. Rekstrarkostnaður í heild hækkar um 99 milljónir króna eða 1,6% milli ára en kostnaðarhlutfallið hækkar úr 16,3% í 16,4%. Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 3.043 milljónum króna, samanborið við 3.003 milljónir króna árið áður. EBITDA hækkar um 1,3% milli ára og var EBITDA framlegð 7,9% líkt og árið áður. Hagnaður tímabilsins fyrir skatta nam 2.617 milljónum króna, samanborið við 2.466 milljónir króna árið áður. Hagnaður eftir skatta nam 2.094 milljónum króna á tímabilinu, sem jafngildir 5,5% af veltu en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 1.973 milljónir. Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 26.453 milljónum króna. Fastafjármunir voru 13.124 milljónir króna og veltufjármunir 13.329 milljónir króna. Þar af voru birgðir 4.969 milljónir króna en birgðir voru 5.015 milljónir króna ári áður. Eigið fé félagsins var 13.020 milljónir króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 49,2%. Heildarskuldir samstæðunnar voru 13.433 milljónir króna, þar af voru langtímaskuldir 4.536 milljón króna. Nettó vaxtaberandi skuldir félagsins í lok tímabilsins voru 1.488 milljónir króna en 1.957 milljónir króna voru greiddar inn á langtímalán félagsins umfram lánssamning á tímabilinu. Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 2.766 milljónum króna, samanborið við 2.524 milljónir króna á fyrra ári. Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 400 milljónir króna og fjármögnunarhreyfingar 3.463 milljónir króna. Í lok júní var greiddur arður til hluthafa að fjárhæð 1.172 milljónir króna. Handbært fé í lok tímabilsins var 3.046 milljónir króna, samanborið við 3.854 milljónir króna árið áður.
Mest lesið Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Falið að gera Reykjavík aðgengilegri Viðskipti innlent Bretland heldur toppeinkunn sinni Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira