Fótbolti

Soffía frá út tímabilið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Soffía Arnþrúður í leik með Jitex.
Soffía Arnþrúður í leik með Jitex. Heimasíða Jitex
Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir, leikmaður botnliðs Jitex í sænsku úrvalsdeildinni, verður frá keppni út tímabilið, en hún er með slitið krossband í hné. Mbl.is greinir frá.

Soffía hefur leikið níu leiki með Jitex á tímabilinu, þar af sjö í byrjunarliði, og skorað eitt mark.

Soffía, sem hóf ferilinn með Sindra, gekk til liðs við Jitex frá Stjörnunni fyrir tímabilið. Hún varð Íslandsmeistari með Garðarbæjarliðinu 2011 og 2013.

Þá hefur Soffía leikið einn landsleik fyrir Íslands hönd, gegn Þýskalandi á Algarve-mótinu í mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×