Héraðsdómur segir Haga eiga Bónusgrísinn Samúel Karl Ólason skrifar 25. nóvember 2014 10:30 Edith Randy Ásgeirsdóttir fór í mál gegn Högum og fór fram á að fyrirtækinu væri bannað nota bónusgrísinn svokallaða. Vísir
Hagar eru eigendur vörumerkis bónus sem þekkt er sem Bónusgrísinn, samkvæmt Héraðsdómi Reykjavíkur. Teiknari merkisins fór fram á að bónusgrísinn yrði úrskurðaður sem sín eign og hún hefði samið um tímabundin og skilyrt afnot af teikningunni við stofnendur Bónus. Samkvæmt því samkomulagi hefði hún rétt til að afturkalla öll afnot af bónusgrísnum. Edith Randy Ásgeirsdóttir fór í mál gegn Högum og fór fram á að fyrirtækinu væri bannað nota Bónusgrísinn svokallaða. Hún fór einnig fram á 500 þúsund króna dagsektir frá dómsuppsögu, þar til vörumerkið væri afskráð og allar myndir af grísnum teknar úr notkun. Edith teiknaði merkið fyrir Bónus árið 1989, þegar hún rak Landlist, auglýsinga- og skiltagerð. Þá vann hún margvíslega hönnunarvinnu og auglýsingagerð fyrir Bónus fram að árinu 2007. Hún lagði fram samkomulag sem hún sagðist hafa gert við stofnendur Bónus í lok árs 1991 um eignar-, notkunar-, og umráðarétt Bónusgríssins. Þar segir að verði breyting gerð á eignarhaldi Bónus eigi Edith tilkall til þess að afturkalla rétt fyrirtækisins á allri notkun gríssins, innan tuttugu ára frá breytingum eignarhaldsins. Hún nýtti sér þó ekki þann rétt fyrr en árið 2010, þegar Arion Banki hafði eignast fyrirtækið. Þrátt fyrir það hafi hún starfað með stjórnendum Bónus í um 18 ár og á þeim tíma hafi fyrirtækið farið í gegnum mörg eigendaskipti. Þá segir í dómsorðunum að hún hafi heldur ekki sýnt fram á rétt sinn þegar hún mótmælti skráningu vörumerkisins til Einkaleyfisstofu. Þegar Edith hófst ætlaði að sækja rétt sinn til gríssins voru níu ár liðin frá niðurstöðu Einkaleyfisstofu lá fyrir um að Haga ættu bónusgrísinn. Í dómsorðum segir að hún hafi því tapað rétti sínum vegna tómlætis. Málskostnaður var felldur niður. Dóminn má sjá á heimasíðu Héraðsdóms Reykjavíkur.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira