Áframhaldandi fiskvinnsla á Djúpavogi Stefán Árni Pálsson skrifar 29. október 2014 11:27 MYND/SKÚLI ANDRÉSSON
Fiskvinnsla hefst á Djúpavogi undir merkjum Búlandstinds um næstu áramót. Vísir hf. hefur selt fyrirtæki á staðnum, Ósnesi, hlutafé sitt í Búlandstindi á 500 þúsund krónur. Vísir mun afhenda Búlandstindi fasteignir sínar á Djúpavogi, sem metnar eru á 50 milljónir króna, án endurgjalds, verði stöðug vinnsla í húsunum næstu fimm ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vísi. Engin starfsemi hefur verið undir nafni Búlandstinds síðustu ár en Ósnes og Fiskeldi Austfjarða hf. hafa skuldbundið sig til þess að auka hlutafé Búlandstinds um samtals 140 milljónir króna og hefja þar fiskvinnslu, auk vinnslu og pökkunar á eldisfiski. Ósnes kaupir tæki og búnað Vísis á staðnum og leggur inn sem hlutafé í Búlandstind og hlutafé Fiskeldis Austfjarða verður í formi tækjabúnaðar til vinnslu og pökkunar á eldisfiski. „Með þessum samningum og afhendingu fasteigna sinna án greiðslu að uppfylltu skilyrði um vinnslu næstu ár, vill Vísir gera sitt til að tryggja áframhaldandi fiskvinnslu á Djúpavogi eftir að fyrirtækið flytur starfsemi sína þaðan til Grindavíkur um næstu áramót. Gert er ráð fyrir um 30 störfum hjá Búlandstindi við almenna fiskvinnslu og slátrun, vinnslu og pökkun á eldisfiski,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Viðskipti innlent Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk Sjá meira