Helmingur vinnuafls er kvenfólk Jakob Bjarnar skrifar 3. september 2013 13:05 Vigdís Hauksdóttir telur málflutning Þóreyar Þórðardóttur hjá lífeyrissjóðunum einkennast af fyrirslætti.
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður og formaður fjárlaganefndar, telur lífeyrissjóðina síst of góða til að fylgja reglum um kynjakvóta í stjórnum sjóðanna. Framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða segir að lög sem snúa að kynjahlutfalli í stjórnum lífeyrissjóða kunni að ganga of langt og býst við að funda með núverandi stjórnvöldum vegna málsins. Þetta hefur komið fram í fréttum. Framkvæmdastjórinn segir lögin ekki hönnuð með hagsmuni lífeyrissjóðanna að leiðarljósi. Enn uppfylla sjö lífeyrissjóðir ekki skilyrði laganna, sem tóku gildi í fyrradag. Vigdís botnar ekkert í þessum málflutningi. Aðspurð hvort hún sé fylgjandi kynjakvótum almennt segir hún að persónuleg skoðun sín í þeim efnum skipti ekki máli. „Nú er búið að lögleiða lög um kynjakvóta í stjórnir félaga og lífeyrissjóða. Þetta eru þau lög sem við búum við í dag og hljótum að bregðast við með því að uppfylla þau lög." Vigdís telur þetta undanbrögð af hálfu Þóreyjar Þórðardóttur, framkvæmdastjóra landsamtaka lífeyrissjóða. „Já. Ég átta mig ekki á því hvert er verið að fara. Helmingur vinnuafls er kvenfólk. Gagnrýnin snýr að því að ekki séu til nógu margar hæfar konur til að sitja í stjórnum lífeyrissjóðanna. Þetta er umræða sem ég átta mig ekki á. Það er litið svo á að konurnar geti ekki komið þarna inn af því að þeir eru ekki í tilteknum lífeyrissjóðum? Stjórnir lífeyrissjóða eiga að vera eins og stjórnir fyrirtækja. Það á að sækja fólk út fyrir hópinn ef ekki vill betur. Til að koma inn með þekkingu inn í stjórnina. Til að lífeyrissjóðirnir séu sem best reknir. Um það gilda sömu lögmál og fyrirtæki á almennum vinnumarkaði."
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira