Við Halldór verðum hengdir Jakob Bjarnar skrifar 12. ágúst 2013 07:52 Gylfi Ægisson: Við Halldór verðum hengdir, í hádeginu í dag.
Gylfi Ægisson tónlistarmaður er óvænt lentur í auga stormsins, umræðunni um stöðu samkynhneigðra á Ísland, og þykir nóg um því hann hefur svarað fyrir sig með stöku. Forsaga málsins er sú að Halldór Jónsson verkfræðingur skrifað bloggfærslu þar sem fram kemur að honum þyki nóg um fyrirferð samkynhneigðra í samfélaginu. Margir hafa orðið til að býsnast á greininni og DV sauð upp frétt byggða á bloggfærslu Halldórs. Gylfi stakk niður penna á athugasemdakerfi blaðsins og lýsti sig sammála Halldóri. „Þegar Borgarstjórinn er farinn að klæðast Íslenska Þjóðbúningnum (Gefa skít í hann) og mála sig, verður manni óglatt. Megas vinur minn spurði mig einu sinni af hverju heitir engin gata Rassgata í Reykjavík? Mæli ég nú með því að laugarvegurinn verði skírður upp á nýtt og Látinn heita Rassgata. Það væri svo við hæfi að Jón Gnarr klipti á borðann," skrifar Gylfi. Hann lét það ekki duga og bætti við: „Börn sem horfa á og alast upp við að þetta sé allt eðlilegt finnst þetta kanski spennandi og skemmast við að sjá þetta seinna meir. Ef svo að þjóðin öll verður orðin öfug eftir nokkur ár, þarf að flytja inn börn frá Rússlandi." Mál sem þessi vilja vinda uppá sig og DV sló þessum ummælum Gylfa upp undir fyrirsögninni: Gylfi Ægis óttast að börnin „skemmist" vegna Gay Pride. Gylfa þykir nóg um og í morgun bauð hann vinum sínum á Facebook upp á vísu sem ætla má að loki málinu.Æfi tímar ei lengdir,okkur ekki í hag.Við Halldór verðum hengdir,Í hádeginu í dag.Eitt er hægt að gera,við þá deyjum ei.Ef við þykjumst vera,orðnir báðir gay.
Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Innlent Fleiri fréttir Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Fólk kasti atkvæði sínu á stríðsbálið „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Gætu gloprað niður sigrinum eða tryggt sér hann í kvöld Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Piparúða beitt gegn mótmælendum í Skuggasundi Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Notuðu piparúða á mótmælendur Sjá meira