Klámhundurinn Weiner enn í veseni Jakob Bjarnar skrifar 24. júlí 2013 07:46 Weiner ásamt konu sinni á blaðamannafundinum. Á netinu gegnir hann hins vegar nafninu Carlos Danger.
Borgarstjóraefnið í New York, Anthony Weiner, virðist ekki geta stillt sig þegar netið er annars vegar; enn hefur hann verið gripinn við þá iðju að senda konum kámfengin skilaboð og myndir á netinu. Weiner hefur nú viðurkennt að hafa sent konu nokkurri dónaleg skilaboð. Þetta er tveimur árum eftir að hann þurfti að yfirgefa þingið vegna hliðstæðra mála. Ónefnd kona greindi vefsíðunni The Dirty frá því að hún hafi átt í sambandi við hinn 48 ára gamla Weiner undanfarið árið. Weiner, sem hefur verið efstur í skoðanakönnunum yfir borgarstjóraefni demókrata að undanförnu, baðst opinberlega afsökunar á þessu í gær. Árið 2011 hélt hann því fram að Twitter-reikningur sinn hefði sætt tölvuárás en viðurkenndi svo að hafa sent ungum konum klámfengnar myndir. Weiner hélt blaðamannafund ásamt konu sinni í gær þar sem hann baðst afsökunar en sagðist ekki ætla að draga framboð sitt til baka, en kosið verður í november. Þrír keppinauta hans hafa hins vegar farið fram á að hann dragi sig umsvifalaust til hlés. Kona hans, Huma Abedin, tilkynnti á blaðamannafundinum að hún elskaði mann sinn og fyrirgæfi honum. En, gerði ekki lítið úr því að hann hefði gjarnan mátt sleppa þessu. Konan sem um ræðir, sú sem Weiner var að dónast við á netinu, segir að hún hafi fengið skilaboð frá honum í júlí 2012 og samband þeirra hafi staðið í hálft ár. Hún var 22 ára þegar þau hittust á samskiptavefnum Formspring. Konan heldur því fram að Weiner hafi þar gengið undir nafninu Carlos Danger. The Dirty hefur eftir konunni að hún hafi þá verði ung og heimsk. En vilji nú hún að lýðum sé gert það ljóst að Weiner sé að ljúga þegar hann vilji draga af sér þá mynd að hann sé nýr og betri maður.
Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Sjá meira