Innlent

Flúði til Íslands með dætur sínar þrjár

Andri Ólafsson skrifar
Í Kaupmannahöfn. Ekki liggur fyrir hvernig konan koma dætrum sínum heim til Íslands frá Danmörku.
Í Kaupmannahöfn. Ekki liggur fyrir hvernig konan koma dætrum sínum heim til Íslands frá Danmörku. Nordicphotos/AFP
Danskur þriggja barna faðir hefur kært íslenska barnsmóður sína til lögreglunnar í Danmörku, en hann hefur grun um að konan hafi numið dætur þeirra þrjár á brott og farið með þær til Íslands í leyfisleysi.

Hann hefur ekkert heyrt frá börnunum í margar vikur. Faðirinn hefur fullt forræði yfir börnunum en móðirin aðeins umgengnisrétt. Það fyrirkomulag er niðurstaða áralangra forræðisdeilna fyrir dómstólum sem hafa verið afar harðvítugar, ekki síst vegna ásakana konunnar um að maðurinn hafi beitt sig og börnin ofbeldi. Maðurinn neitar þeim ásökunum.

Samkvæmt heimildum blaðsins var móðirin með stúlkurnar hjá sér í Danmörku síðla sumars og átti samkvæmt samkomulagi að skila þeim aftur þann 4. ágúst. Það gerði hún hins vegar ekki og hefur faðirinn ekkert heyrt frá þeim síðan.

Heimildir blaðsins herma jafnframt að konan hafi komið til Íslands í byrjun síðustu viku og að dæturnar þrjár séu með henni.

Yfirvöldum hér á landi er kunnugt um þá stöðu sem upp er komin í málinu. Ekkert verður hins vegar aðhafst í málinu að svo stöddu því formlegt erindi hefur ekki borist frá dönskum stjórnvöldum.

Fréttablaðið reyndi að ná tali af konunni og nokkrum aðstandendum hennar í gær. Ekki náðist í hana og bróðir hennar vildi ekki ræða við blaðamann. Þá svaraði lögmaður hennar, Hreinn Loftsson, hvorki símtölum né skilaboðum.

Lára V. Júlíusdóttir hæstaréttarlögmaður, sem farið hefur með mál föðurins, staðfesti við Fréttablaðið í gærkvöldi að málið hefði verið kært til lögreglu í Danmörku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×