Ekki haft tíma til að auglýsa vaxtabætur Stígur Helgason skrifar 15. ágúst 2013 07:00 Eigendur heimila sem á hvíla lánsveð eiga að fá sérstöku vaxtabæturnar sem uppbót fyrir aðra mismunun. Fréttablaðið/vilhelm
Ríkisskattstjóri segir að þeir sem tilheyra svokölluðum lánsveðshópi þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að fá ekki sérstakar lánsveðsvaxtabætur sem síðasta ríkisstjórn lögfesti rétt fyrir þinglok í vor. Frestur til að sækja um bæturnar til Ríkisskattstjóra rennur út eftir mánuð og þar til í gær hafði embættið ekki kynnt opinberlega hvernig fólk ætti að bera sig að við umsóknina. Fólk sem tilheyrir hópnum hefur haft samband við Fréttablaðið og furðað sig á því að enn hafi ekkert verið gert í þessum efnum þegar svo stutt sé orðið til stefnu. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir að fyrirvarinn sem gefinn var í lögunum hafi verið mjög stuttur. „Þetta helgast bara af því að lögin voru samþykkt rétt áður en þingið fór heim og það hafa verið mjög miklar annir við að framkvæma ýmsar aðrar lagabreytingar,“ segir Skúli, sem segir embættið hafa þurft að taka upp á annað hundrað lagabreytingar undanfarin ár.Skúli Eggert Þórðarson„Ríkisskattstjóri kom því sjónarmiði á framfæri að þetta væri stuttur fyrirvari. En látum það nú vera, þetta er orðið að lögum í landinu,“ segir Skúli. „Það sem Ríkisskattstjóri mun gera er að taka saman leiðbeiningar um þetta mál og setja á vefinn, birta almenna auglýsingu og gera grein fyrir því í hverju þessi réttur felst og hvaða skyldur eru þarna.“ Í lögunum er kveðið á um að umsóknarfrestur sé til 15. september og að umsækjendum beri að afhenda ríkisskattstjóra þau gögn sem hann telur nauðsynleg vegna ákvörðunar bótanna. Hins vegar segir einnig í lögunum að embættinu sé heimilt að taka til greina umsóknir sem berast eftir þetta tímabil í allt að tvö ár. Meðal annars í þessu ljósi segist Skúli ekki óttast að fólk hafi of knappan tíma til stefnu. „Þeir sem heyra þarna undir þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að réttur þeirra verði fyrir borð borinn. Þetta er ekki þannig að menn lokist inni á þessum fresti.“ Síðdegis í gær vakti Skúli svo athygli Fréttablaðsins á því að frétt um lánsveðsvaxtabæturnar og tilheyrandi upplýsingar væru komnar á vef stofnunarinnar, rsk.is. Þar kemur fram að umsóknareyðublað verði tilbúið í lok mánaðar.
Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent