Jarðskjálfti veldur ekki áhyggjum Svavar Hávarðsson skrifar 5. júlí 2013 09:00 Bakki við Húsavík.
Vegna iðnaðarstarfsemi á Bakka við Húsavík verður að tryggja aðdrætti frá Húsavíkurhöfn að iðnaðarsvæðinu. Vegtengingin sem er á teikniborðinu er að stærstum hluta jarðgöng í gegnum Húsavíkurhöfða. Á sama tíma benda rannsóknir til að nægileg spenna sé á Húsavíkurmisgenginu fyrir stóran jarðskjálfta. Spurt er um hugsanlegar hættur varðandi jarðgöngin en annar vegskáli ganganna er við virkustu sprungugreinina á svæðinu.Umsvif Ef allar áætlanir um uppbyggingu á Bakka ganga eftir er áætlað að árlega muni fara um 1,5 milljónir tonna af hráefni og afurðum um Húsavíkurhöfn. Sem stendur er lítið geymslusvæði við höfnina og takmarkaðir möguleikar á stækkun þess. Til að mæta þeim takmörkunum er stefnt að því að flytja allt hráefnið beint á iðnaðarlóð á Bakka jafnóðum og það kemur til hafnar. Stefnt er að því að nota sérútbúna bílalest sem getur tekið allt að 85 tonn í hverri ferð, með heildarþunga upp á 123 tonn. Slíkar bílalestir eru 50 metra langar. Stysta leið á milli Húsavíkurhafnar og iðnaðarlóðarinnar á Bakka er um 1,8 kílómetrar og liggur um Húsavíkurhöfðann sem er um 70 metra hár þar sem hann er hæstur. Þar í gegn er ætlunin að leggja göng; verk sem Vegagerðin mun annast ef áætlanir ganga eftir. Lengd ganganna yrði um 1.100 metrar með vegskálum sem yrðu við núverandi hafnarsvæði og í Laugardal í norðri. Þessi framkvæmd fellur undir lög um uppbyggingu innviða sem fyrri ríkisstjórn samþykkti í apríl 2013, en þessi verkþáttur er talinn kosta um 1,8 milljarða króna miðað við verðlag í lok árs 2012Sprungan Fréttablaðið greindi frá því 25. júní að nýjustu rannsóknir jarðvísindamanna sýna að spenna í Húsavíkurmisgenginu svokallaða sé til staðar fyrir skjálfta af stærðinni 6,8 á Richter, en svo stórir skjálftar og stærri eru þekktir á svæðinu. Það er mat Páls Einarssonar, prófessors í jarðeðlisfræði, að upplýsingarnar ættu að skoðast í ljósi ákvarðana um uppbyggingu mannvirkja, ekki síst kísilmálmverksmiðju PCC á Bakka enda væri verksmiðjan bókstaflega ofan í virkasta sprungusvæðinu. Nefndi hann sérstaklega sprungugrein kennda við Skjólbrekku og aðra sem kennd er við Laugardal – þar sem jarðgöngin kæmu upp úr jörðinni norðan megin. Sprungugreinarnar tvær eru þær virkustu á Húsavíkurmisgenginu. Því yrðu göngin staðsett skammt frá stærstu jarðskjálftasprungum á svæðinu – þar sem ein mesta jarðskjálftahættan er á landinu.Öruggustu mannvirkin „Ekki eru fyrirséð nein sérstök vandkvæði vegna þessarar hættu enda yrði tekið tillit til hennar í hönnun verksins. Reynslan sýnir enn fremur að jarðgöng í bergi eru ein öruggustu mannvirkin í jarðskjálftum,“ segir í skýrslu GeoTek ehf., sem vann jarðfræðirannsókn fyrir Vegagerðina vegna líklegra framkvæmda í Húsavíkurhöfða. Björn A. Harðarson, jarðverkfræðingur hjá GeoTek, segir að vissulega hafi verið litið sérstaklega til þess að misgengið í Laugardalnum, frá fjalli til fjöru, liggur rétt fyrir utan gangamunnann. Allir þekki til þessa og sagna af jarðhræringum á fyrri tíð. „En við teljum að þetta misgengi útiloki alls ekki mannvirki á þessum stað. Jarðgöng þola ótrúlega vel jarðskjálfta og í raun öruggara að vera inni í göngunum en á yfirborði,“ segir Björn og bætir reyndar við að ekki hafi verið tekið tillit til eins sterks skjálfta og jarðvísindamenn tala um, eða allt að 7,0 á Richter. Hann segir útilokað að göng hrynji saman við svo sterkan skjálfta, fólk þurfi engar áhyggjur að hafa af slíku. Gísli Eiríksson, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á Ísafirði, vann, ásamt kollega sínum Birgi Guðmundssyni, minnisblað vegna iðnaðarvegarins á milli hafnarinnar og Bakka. Hann tekur undir orðs Björns um hversu vel jarðgöng standa af sér jarðskjálfta. Hins vegar segir Gísli að skoða verði sérstaklega gangagerð og vegskála með tilliti til stórra jarðskjálfta. Í raun sé ekki um vandamál að ræða en því fylgi óneitanlega aukinn kostnaður.Áhætta og öryggi Í frummatsskýrslu umhverfismats vegna kísilmálmverksmiðju PCC, frá febrúar í ár, segir að til að draga úr áhættu vegna jarðskjálfta verða mannvirki hönnuð sérstaklega með tilliti til þeirra. Eins að leiðslur fyrir jarðgas, sem fylgir sprengihætta, og kerfi sem innihalda eitraðar lofttegundir verða hönnuð sérstaklega með jarðskjálftaálag í huga samkvæmt ströngustu kröfum. „Viðbragðsáætlanir verða unnar fyrir alla starfsemina með sérstaka áherslu á þætti sem valda áhættu fyrir fólk, umhverfi og starfsemi við og í kjölfarið á jarðskjálfta, t.d. vegna gasleka eða óæskilegrar losunar úrgangs eða eitraðra lofttegunda,“ segir þar einnig.
Mest lesið Óvissa uppi um „stóra og fallega“ frumvarpið og Musk hótar hefndum Erlent Stjórnarformaðurinn segir stund sannleikans runna upp fyrir Eurovision Innlent „Þetta er komið út fyrir öll mörk“ Innlent „Þetta er ekkert líf“ Innlent Læknanemar látnir borga hagræðingarbrúsann Innlent Með barnaníðsefni í símanum þegar hann var „laminn í stöppu“ Innlent Skipt um lás hjá Sósíalistaflokknum Innlent Ragna yfirgefur Alþingi mánuði fyrr en áætlað var Innlent Mikill minnihluti telur stjórnarandstöðuna standa sig vel Innlent Andlát í Garðabæ: Úrskurðuð í gæsluvarðhald umfram hámarkslengd Innlent Fleiri fréttir Ræddu við sextíu manns í tengslum við hvarf Jóns Þrastar Magnús Þór lést við strandveiðar Seinkun fréttatímans seinkað Andlát í Garðabæ: Úrskurðuð í gæsluvarðhald umfram hámarkslengd Tvöfalt siðgæði EBU mikið áhyggjuefni Landris heldur áfram í Svartsengi Með barnaníðsefni í símanum þegar hann var „laminn í stöppu“ Samstöðin hafi aldrei verið í hættu „Þetta er komið út fyrir öll mörk“ „Held að þau átti sig ekki á því hvað þetta skiptir okkur miklu máli“ Læknanemar fái víst launahækkun Prófessor segir málþófið komið út fyrir öll mörk Bundið slitlag að fossinum Dynjanda í næsta mánuði Ragna yfirgefur Alþingi mánuði fyrr en áætlað var Mikill minnihluti telur stjórnarandstöðuna standa sig vel Stjórnarformaðurinn segir stund sannleikans runna upp fyrir Eurovision Ræddu veiðigjaldið til hálf þrjú í nótt Foreldrar fjölbura fá lengra fæðingarorlof Læknanemar látnir borga hagræðingarbrúsann Náðu með markaðsátaki að lokka til sín fleiri smærri leiðangursskip Skipt um lás hjá Sósíalistaflokknum Nemendur greiði tuttugu þúsund krónum meira í Strætó en starfsfólk Sanna og Gunnar Smári höfðu betur á æsingarfundi Annað útkall vegna strandveiðibáts úti fyrir Patreksfirði „Þetta er ekkert líf“ Umræða um veiðigjöldin orðin sú þriðja lengsta Óprúttinn aðili rispaði tíu bíla á Seltjarnarnesi Fylkingarnar safna liði og ásakanir ganga á víxl: Stefnir í átök í Bolholti Líf í biðstöðu og hitafundur sósíalista Strandveiðisjómaður lést Sjá meira