Sveifla milli ára er 398 milljarðar Óli Kristján Ármannsson skrifar 12. júní 2013 07:00 Slitaferli föllnu bankanna veldur miklum sveiflum í tölum Seðlabanka Íslands um fjárfestingu innan og utan landsteinanna. Samsett mynd
Markverður samdráttur í nýbirtum tölum Seðlabanka Íslands um erlenda fjárfestingu innan landsteinanna og innlend fjárfestingu í útlöndum. Umsvif vegna slita á þrotabúum föllnu bankanna gera þó að verkum að torvelt getur verið að draga út frá tölunum víðtækar ályktanir um stöðu fjárfestingar. Tölur Seðlabankans um erlenda fjárfestingu ná yfir eignir og fjárfestingu þar sem eignarhald í fyrirtækjum fer yfir 10 prósent, að sögn Lárusar Jóhannessonar á deild gagnasöfnunar og upplýsingavinnslu í Seðlabankanum. Lárus bendir á að fjárfestingar í útlöndum í „útrásinni svokölluðu“ hafi í mörgum tilvikum lent í ranni slitastjórna föllnu bankanna íslensku, en bankarnir hafi gjarnan lánað út á veð í viðkomandi fyrirtækjum. „Svo selja slitastjórnirnar,“ segir hann og við þá sölu myndist neikvæð stærð í tölum um beina fjárfestingu innlendra aðila erlendis. „Það er í rauninni verið að affjárfesta, losa eignir.“ Um leið sýna tölurnar að í beinni erlendri fjárfestingu hafi útlendingar fest 83,92 milljarða króna á Íslandi árið 2012, miðað við 128,42 milljarða árið áður. Þarna geta þó einnig orðið nokkrar sveiflur milli ára, til dæmis vegna lánaviðskipta stórra fyrirtækja. „En það er samt vitað leið að með fjárfestingarleið Seðlabankans er í einhverju mæli að koma inn fjármagn,“ segir Lárus. Fjárfestar eða fyrirtæki koma þá inn í landið með svonefndar „aflandskrónur“ í skilgreind fjárfestingarverkefni og 15 prósenta gjaldeyrisálag að auki. „Í því er núna talsverður gangur.“ Gylfi Magnússon, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, tekur undir að erfitt sé að draga ályktanir af tölum Seðlabankans um beina fjárfestingu. „En hins vegar er náttúrlega alveg rétt að erlend fjárfesting er eiginlega engin á Íslandi, þótt liggja þurfi yfir þessum tölum til þess að sjá það,“ segir hann. Höftin séu þar ein skýring, en um leið megi horfa til þess að fjárfesting hafi dregist mikið saman. „Þetta er því ekki séríslenskt að fjárfesting sé lítil, þótt höftin bæti sjálfsagt ekki úr hér.“
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Sjá meira