Lífið

Heimsótti skóla í Madagaskar

Katy Perry heimsótti þorp í Madagaskar og brá sér á leik með börnum.
Katy Perry heimsótti þorp í Madagaskar og brá sér á leik með börnum. Getty/Unicef

Söngkonan Katy Perry er ötull tals- og stuðningsmaður UNICEF-samtakanna. Hún heimsótti þorpið Ampihaonana á Analanjirofo-svæðinu á Madagaskar og heimsótti meðal annars næringarmiðstöð og skóla ásamt því að ræða við íbúa þorpsins.



„Menntun er ómetanlegt tækifæri fyrir börnin hér. Þau og kennarar þurfa oft að ganga í 45 mínútur til þess að komast í skólann,“ sagði Perry við þetta tækifæri. Skólinn í Ampihaonana eyðilagðist er hvirfilvindur gekk yfir svæðið en hægt var að byggja nýjan með fjárhagsaðstoð frá UNICEF. Í nýju skólabyggingunni eru kynjaskipt baðherbergi og hreint drykkjarvatn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.