Útgeislunin segir allt 14. febrúar 2013 06:00 Fríða opnaði Curvy.is fyrst sem netverslun árið 2011 en í október 2012 opnaði hún glæsilega tískuverslun í Nóatúni 17. Myndir/Vilhelm „
Það er algengur misskilningur að svartur grenni og klæði af aukakíló,“ segir Fríða verslunareigandi Curvy.is. "Þetta snýst allt um að finna snið sem hæfa vaxtarlaginu og klæðast litum eða munstrum sem blekkja augað svo líkaminn virðist grennri en ella.“ Curvy dásamar mjúkar línur og er í daglegum tengslum við nýjustu tískustrauma fyrir yngri konur. "Á Íslandi hefur lengi gerst að stelpur með mjúkar línur gleymist þegar kemur að tískufatnaði í stærri stærðum. Því rættist ósk þeirra þegar Curvy fann frábær vörumerki sem framleiða tískufatnað í stærri númerum svo allar konur geti notið þess að klæða sig fallega, óháð aldri,“ segir Fríða sem einnig á glæsilega kjóla á mæður fermingarstúlkna sem hún segir oft vilja líka "skvísa sig upp“ fyrir fermingardaginn. "Það sem hefur verið áberandi vinsælast fyrir fermingardaginn eru blúndur, bjartir litir, blóm og munstraðir kjólar. Ég hvet stelpurnar til að vera óhræddar við að máta því útkoman kemur oft ánægjulega á óvart. Litir geta til dæmis gjörbreytt útlitinu, frískað upp litaraftið, gert augun bjartari og um leið fer fólk að taka eftir öðru en holdafarinu,“ segir Fríða. "Okkur finnst ekkert jafn skemmtilegt og að aðstoða stelpurnar við að finna á sig réttu sniðin og fötin sem henta þeim best.“ Fríða segir fermingarkjóllinn ekki eiga að vera málamiðlun og að stelpur eigi ekki að sætta sig við að klæðast því skásta sem þær finna. "Sjálf átti ég í miklum erfiðleikum með að finna fermingarkjól á sínum tíma því lítið var í boði fyrir stelpur í stærðum 42 og yfir. Því var farið búð úr búð en ekkert fannst í hefðbundnum tískuverslunum og það hjálpaði ekki sjálfstraustinu.“ Fríðu finnst miklu skipta að stelpur sem koma í Curvy líði vel í fötum sínum, séu ánægðar með sig og fari sáttar út. "Það er einstaklega gefandi að sjá þær ljóma þegar þær loks finna föt á sig og hafa meira að segja úr úrvali fallegra klæða að velja. Jafnvel þótt maður sé með einhver aukakíló þýðir það ekki að maður geti ekki verið flottur. Ég finn það bara sjálf þegar ég hef tekið mig aðeins til og er komin í föt sem klæða mig vel. Þá líður manni svo miklu betur með sjálfan sig. Það er öfundsvert að líða vel í eigin skinni, burtséð frá holdafari, og slíkt sjálfstraust er aðlaðandi og skín í gegn.“ Curvy.is er í Nóatúni 17 . Kíktu líka á curvy.is eða á Facebook-síðuna hjá Curvy. Blómamunstur og bjartir litir eru hæstmóðins í vor og sumar.
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira