Viðskipti innlent

Vísa kjarasamningsviðræðum til ríkissáttasemjara

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Talsmaður samninganefndar SGS er Björn Snæbjörnsson.
Talsmaður samninganefndar SGS er Björn Snæbjörnsson. Mynd/Aron Brik
Samninganefnd Starfsgreinasambandsins átti fund í dag með Samtökum atvinnulífsins.

Samtök atvinnulífsins hafnaði í nóvember kröfum sambandsins og í kjölfarið var frestað þess að fara í viðræður við SA í undir hatti ASÍ. ASÍ sleit þeim viðræðum í gær.

Samninganefnd sambandsins telur vonlítið um frekari árangur í samningaumleitunum og hefur ákveðið að vísa kjarasamningsviðræðum til ríkissáttasemjara.

Svohljóðandi yfirlýsing var samþykkt á samninganefndarfundinum:

„Í kröfugerð Starfsgreinasambands Íslands (SGS) sem lögð var fyrir Samtök Atvinnulífsins í byrjun nóvember var lögð áhersla á hækkun lægstu launa. Lögð var til blönduð leið prósentu og krónutöluhækkana til að koma í veg fyrir það ranglæti að lægst launaða fólkið fengi minnst og það hæst launaða mest. Lagt var til að við lægstu taxtana bættust 20.000 krónur og þykir mörgum það vera hógvær krafa. Samtök atvinnulífsins hafnaði kröfunum samstundis.

Í kjölfarið ákvað samninganefnd Starfsgreinasambandsins að freista þess að fara í viðræður við SA í samfloti við önnur landssambönd undir hatti samninganefndar ASÍ. Nú er komið í ljós að SA leggst ennþá eindregið gegn tilraunum til að hækka lægst launaða fólkið á vinnumarkaði með krónutöluhækkunum og við það getur hvorki samninganefnd ASÍ né samninganefnd SGS unað.

Samninganefnd SGS hefur því ákveðið að vísa kjarasamningsviðræðum til ríkissáttasemjara enda er talið vonlítið um frekari árangur í samningaumleitunum. Jafnframt verður aðgerðarhópur SGS kallaður saman í framhaldinu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×