Árið 2013 byrjar ekki vel hjá Casillas Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. janúar 2013 11:45 Iker Casillas. Mynd/NordicPhotos/Getty
Árið 2013 byrjar ekki vel hjá spænska landsliðsmarkverðinum Iker Casillas. Fyrst setti Jose Mourinho hann á varamannabekkinn hjá Real Madrid og á miðvikudaginn varð hann síðan fyrir því að handarbrotna í bikarleik á móti Valencia. Iker Casillas fór í aðgerð í gær á vinstri hendi og gæti verið frá í allt að tólf vikur á meðan hann er að ná sér. „Aðgerðin gekk vel," sagði læknirinn Miguel Del Cerro við spænska blaðamenn. „Endurhæfingin gæti tekið á bilinu átta til tólf vikur. Það er betra að sjá til hvernig gengur og bíða með að gefa upp nákvæmari tímasetningar," sagði Del Cerro. Casillas meiddist í leiknum á móti Valencia þegar liðsfélagi hans Alvaro Arbeloa sparkaði óvart í hendi hans þegar Arbeloa ætlaði að hreinsa boltann frá. Casillas missir líklega að báðum undanúrslitaleikjum spænska bikarsins á móti Barcelona sem og leikjum liðsins í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar á móti Manchester United. Real Madrid er búið að bregðast við þessum slæmu fréttum því félagið keypti í gær hinn 31 árs gamla Diego López frá Sevilla fyrir 4,5 milljónir evra. López var áður í herbúðum Real og talaði um það að það væri gott að komast heim aftur en frægastur er hann fyrir frammistöðu sína með Villarreal frá 2007 til 2012.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Fótbolti Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Fótbolti Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Fótbolti Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Enski boltinn Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Körfubolti Fleiri fréttir Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Neuer eignaðist niðurlægjandi met „Við hlógum bara að því“ Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Lygileg níu marka veisla í París Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Modric brotinn en ætti að ná HM Stones rifar seglin hjá City Anton Ari í Kópavogi til 2028 „Þetta eru tvö bestu lið Evrópu“ Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Arnór Ingvi ætti að vera klár fyrir Valsleikinn Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Reglum um gul spjöld á HM verði breytt Sjáðu öll 26 mörkin úr Bestu deildinni í gær Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Stjarnan - Valur 2-4 | Stórskemmtun í suddanum á Samsung KR - FH 4-2 | Frábærir KR-ingar Aron: 4-2 verður að duga í dag Alexander Linta: Stjórnin er að skoða styrkingu á leikmannahópnum Albert lenti í slysi með sleikjó og braut framtönn Sjá meira