„Enginn búinn að leysa þetta enn“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 19. mars 2013 14:34 Katrín ætlar að heimsækja leikskólabörn í fyrramálið og tala við þau um hamingjuna. Mynd/Stefán
Alþjóðlegi hamingjudagurinn verður haldinn í fyrsta sinn á morgun. Dagurinn er haldinn að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna og er markmið hans að vekja athygli á hamingju sem mikilvægu takmarki fyrir einstaklinga og stjórnvöld. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna viðurkennir hamingju og vellíðan sem sammannlegt grundvallarmarkmið og hvetur aðildarríkin til að leggja enn meiri áherslu á mikilvægi þess að leita að hamingju og vellíðan og að þessi atriði séu höfð til hliðsjónar við ákvarðanir stjórnvalda. Landlæknisembættið býður fjölmiðlum til stuttrar kynningar á Alþjóðlega hamingjudeginum í leikskólanum Vinagarði í fyrramálið þar sem niðurstöður nýrrar könnunar á hamingju Íslendinga verða kynntar. Einnig verða kynntar Fimm leiðir að vellíðan, sem embættið hefur gefið út í tilefni dagsins, en þau fela í sér fimm einföld skref fyrir unga sem aldna í átt að meiri hamingju og betri líðan. „Já ég ætla að heimsækja leikskólabörn í fyrramálið og tala við þau um hamingjuna," segir Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, en hún ætlar ásamt Geir Gunnlaugssyni landlækni að flytja ávarp á kynningunni. „Þetta er dálítið merkilegt. Það er mjög sjaldgæft að hlutir eins og hamingjan séu ræddir svona á pólitískum vettvangi, en það gerðist hjá Sameinuðu þjóðunum og þetta í raun tekið upp sem eitthvað sem eitthvað sem stefna mætti að." Katrín segist vera hamingjusöm, meira að segja þegar hún er döpur, en hefur enn ekki fundið leyndardóminn á bak við hamingjuna. „Ég er ekki komin alveg þangað að ég viti það, en ég held það hafi eitthvað að gera með það að njóta hverrar stundar í núinu og sjá það jákvæða við hlutina þó illa gangi. En það er enginn búinn að leysa þetta enn, ekki heimspekingar og ekki ég heldur."
Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Fleiri fréttir Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Sjá meira