Stofna ofurgrúppu Freyr Bjarnason skrifar 30. apríl 2013 16:00 Meðlimir nýju ofurgrúppunnar sem hitar upp fyrir Deep Purple í Laugardalshöll í júlí. Mynd/Alma geirdal „
Við erum að þessu til að hafa gaman af þessu, njóta þess að vera saman og út af forvitni,“ segir tónlistarmaðurinn Magnús Kjartansson. Fyrrverandi meðlimir Trúbrots, Mána, Náttúru og Pelican hafa stofnað ofurgrúppu sem mun hita upp fyrir Deep Purple á tónleikum í Laugardalshöll 12. júlí. Hljómsveitina skipa Magnús Kjartansson, Gunnar Þórðarson, Ragnar Sigurjónsson, Smári Kristjánsson, Björgvin Gíslason og Ásgeir Óskarsson, auk þess sem reynt verður að fá söngkonuna Shady Owens með í för. „Við erum að pæla í að reyna við hana einu sinni enn,“ segir Magnús, sem gerði garðinn frægan með Trúbroti. Ofurgrúppan, sem hefur enn ekki fengið nafn, hélt fund í hljóðveri Magnúsar á sunnudag þar sem lagðar voru línurnar fyrir framhaldið. „Þetta kom til vegna hvatningar frá þeim sem standa fyrir Purple-tónleikunum og aðdáendum þessa tímabils í íslensku tónlistarsögunni,“ segir Magnús. Draumurinn var að gera grúppu úr liprustu og frískustu aðilum þeirra hljómsveita sem voru vinsælar upp úr 1970 á progressive-tónlistartímabilinu eins og það var oft kallað. Þarna eru menn sem náðu aldrei saman á þessum tíma vegna þess að þeir tilheyrðu sinni klíku og sínum hópi,“ segir hann og lofar flottum tónleikum. „Við ætlum ekki að veigra okkur við að fara í erfiðasta „stöffið“ enda allt saman menn í ágætis formi.“ Aðspurður segir hann það koma til greina að hljómsveitin haldi áfram störfum eftir tónleikana. „Þetta er eins og með landsliðið í fótbolta, það er bara tekinn einn leikur í einu. Þetta er næsti leikur og hann verður spilaður alveg til blóðs. En það svíkst enginn undan kallinu ef það skyldi koma, því þetta er svolítið skemmtilegur „katalóg“ sem er að opnast.“
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Fleiri fréttir Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Sjá meira