Birgir Leifur komst áfram í úrtökumótinu Jón Júlíus Karlsson skrifar 20. september 2013 13:51 Birgir Leifur er kominn áfram á næsta stig í úrtökumótunum. Mynd/GVA
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er kominn áfram á annað stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina. Hann hafnaði í 12. sæti í úrtökumóti á fyrsta stigi sem lauk í dag í Þýskalandi eftir að hafa leikið hringina fjóra á samtals 10 höggum undir pari. 24 kylfingar tryggðu sér sæti á næsta stig og var Birgir Leifur í þeim hópi. Leikið var á Fleesensee vellinum við Berlín í Þýskalandi og lék Birgir vel í dag. Hann lék á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari. Þórður Rafn Gissurarson úr GR tók einnig þátt í úrtökumótinu og var ekki langt frá því að komast áfram. Hann lék samtals á fimm höggum undir pari og var tveimur höggum frá því að komast áfram. Annað stigið í úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina fer fram í byrjun nóvember á Spáni. Komast þarf í gegnum þrjú stig í úrtökumótunum til að tryggja sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni. Birgir Leifur er eini íslenski kylfingurinn sem hefur tryggt sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni en það gerði hann árið 2007.Skortkortið hjá Birgi Leifi í mótinuMynd/Skjáskot
Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira