Niðurstaða ESA um gengislánin kemur ekki á óvart 22. maí 2013 15:10 Guðjón Rúnarsson er framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.
Guðjón Rúnarsson framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja segir að rökstutt álit ESA (Eftirlitsstofnunnar EFTA) um gengislán komi ekki á óvart. Það hafi verið viðbúið að slíkt álit kæmi fram í ljósi ákvæða um frjálst flæði fjármagns í EES samningunum. „Það er hinsvegar rétt að horfa til þess sem ESA segir um neytendavernd í áliti sínu,“ segir Guðjón og á þar við textann í álitinu þar sem segir að það kunni að vera lögmætt að takmarka veitingu svo áhættusamra lána til neytenda. „Ég tel að auðvelt ætti að vera að ná samstöðu um slíkt á Íslandi.“ Guðjón bendir á í þessu sambandi að nýlega voru samþykkt lög á Alþingi þar sem hert er á kröfum um neytendalán, t.d. séu gerðar auknar kröfur um upplýsingaskyldu lánveitenda og greiðslumat hjá þeim sem taka slík lán. Hvað varðar áhrifin af þessu áliti fyrir íslensk fjármálafyrirtæki segir Guðjón að vegna gjaldeyrishaftanna hafi þessi fyrirtæki afar takmarkað svigrúm til að lána í erlendum myntum. „Þegar slíkt svigrúm skapast tel ég að fjármálafyrirtækin muni fara mjög varlega í slíkar lánveitingar í ljósi fyrri reynslu af þessum lánum,“ segir Guðjón. Sjá álit ESA hér.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira