ESA: Algert bann við gengislánum er brot á EES samningum 22. maí 2013 13:37
Ísland hefur gerst brotlegt við EES samninginn með því að leggja algert bann við veitingu gengistryggðra lána í íslenskum krónum. Þetta er niðurstaða rökstudds álits Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) frá því í dag. Fjallað er um málið á vefsíðu ESA. Þar segir að það sé álit ESA að bann við gengistryggingu lána kunni að letja íslenskar fjármálastofnanir í að fjármagna lán sín í öðrum gjaldmiðlum en íslenskum krónum og þar af leiðandi hindra frjálst flæði fjármagns. Samningar með gengistryggingarákvæði kunna að hafa í för með sér áhættu fyrir neytendur. Neytendur fá, að jafnaði, allar sínar tekjur í íslenskum krónum og eru því ekki í stakk búnir til að bregðast við gengissveiflum. Að sama skapi búa neytendur oft ekki yfir nauðsynlegri þekkingu til meta þá áhættu sem felst í gengistryggðum lánasamningum. ESA lítur svo á að það kunni að vera lögmætt að takmarka veitingu svo áhættusamra lána til neytenda. Engu að síður er ESA þeirrar skoðunar að algert bann við veitingu slíkra lána til einstaklinga og fyrirtækja gangi lengra en nauðsynlegt er til að standa vörð um hag neytenda. Í þessu samhengi telur ESA að Ísland geti náð fram neytendaverndarmarkmiðum með öðrum og vægari úrræðum. Ísland gæti t.d. gert þá kröfu til fjármálastofnana að þær upplýsi neytendur með skýrum hætti um þá áhættu sem getur falist í gengistryggingu áður en samningur með gengistryggingarákvæði er undirritaður eða veiti neytendum rétt til þess að hætta við gerðan samning innan ákveðinna tímamarka. Önnur sjónarmið eiga við um fyrirtæki. Ólíkt neytendum eiga lögaðilar að hafa nauðsynlega burði til þess að meta þá áhættu sem fylgt getur töku gengistryggðra lána. Rökstudda álitið telst lokaaðvörun til Íslands. Ísland fær nú tækifæri til að gera viðeigandi ráðstafanir til að bregðast við álitinu ella getur ESA ákveðið að fara með málið fyrir EFTA dómstólinn.
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira