Sannleikurinn: Stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar stórslasaður eftir fagnaðarlæti Andri Þór Sturluson skrifar 27. nóvember 2013 15:27 Þessi sjúkraflutningamaður er reyndar ekki starfandi núna þar sem hann missti vinnuna í seinasta niðurskurði í heilbrigðiskerfinu. Þetta er gömul mynd.
Hræðilegur atburður skyggði á annars frábæran 39 manna niðurskurð hjá RÚV í dag. Einn stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar var að fagna sigri Vigdísar Hauksdóttur, sem var náttúrulega í þessum hagræðingarhópi, á hinni vinstri sinnuðu og ESB hallandi fréttastofu þegar hann féll fram fyrir sig niður stiga milli hæða á skrifstofu Samtaka atvinnulífsins og lenti á höfðinu. Fallið var mikið en að sögn lögreglu tók höfuðið af honum fallið. Hann hlaut þó alvarlega höfuðáverka en ekkert skemmdist sem ekki þegar var ónýtt.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en vegna niðurskurðar höfum við þurft að segja upp lesendum.
Harmageddon Mest lesið David Attenborough hvergi nær hættur en kominn með nóg af órökstuddu bulli Harmageddon Nordic Playlist setur upp útvarpsstöð í Reykjavík Harmageddon Royal Blood með þriðja lag sitt á toppi Pepsi Max listans Harmageddon Semja ný lög í sumarbústað Harmageddon Sannleikurinn: Þetta hefði getað verið ég sem missti vinnuna í dag Harmageddon Íslandsdeild Evrópusambandsins lögð niður Harmageddon Upptökur í búgarði gítarleikara Strokes Harmageddon Ný klippa úr kvikmynd um Jimi Hendrix Harmageddon Bandarískir rapparar hrifnir af Actavis Harmageddon Allt öðruvísi útrás hefst Harmageddon