Óvissustig vegna hugsanlegs goss í Heklu Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. mars 2013 11:22 Hekla gaus síðast árið 2000.
Búið er að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðhræringa í Heklu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ríkislögreglustjóra og lögreglustjóra á Hvolsvelli. Í tilkynningunni segir að Veðurstofa Íslands hafi upplýst almannavarnadeild ríkislögreglustjóra um óvenjulegar jarðhræringar í Heklu. Jafnframt hafi Veðurstofan hækkað eftirlitsstig Heklu í gult vegna flugumferða, sem þýði að eldfjallið sýni óvenjulega virkni. Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarrás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf. Óvissustigi er lýst yfir til þess að upplýsa viðeigandi viðbragðsaðila og er ákveðið ferli í skipulagi almannavarna og það lægsta af þrem. Ríkislögreglustjórinn og lögreglustjórinn á Hvolsvelli vara við ferðum fólks á Heklu á meðan óvissustig er í gildi. Hægt er að sjá beina útsendingu frá Heklu úr vefmyndavél Mílu á livefromiceland.is.
Mest lesið Alvarlegt rútuslys í Öxnadal Innlent Losuðu stúlku úr „prísund“ við Háskólabíó Innlent Vill losna við lífverði Bjarna úr þinghúsinu Innlent Refsing manns sem nauðgaði þroskaskertum konum milduð verulega Innlent Heimtaði að allir í bænum töluðu íslensku Innlent Ísland orðið „pínkulítið lélegra og leiðinlegra“ Innlent Tónlistarmaðurinn Róbert Örn er fallinn frá Innlent Tilkynntu um ekki yfirvofandi eldgos Innlent Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Erlent Íþróttafélög hafa sum selt áfengi í leyfisleysi Innlent Fleiri fréttir Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Kynntu á annað hundrað aðgerðir í loftslagsmálum Þeir sem „brjóta alvarlega af sér“ verði sviptir dvalarleyfum Íþróttafélög hafa sum selt áfengi í leyfisleysi Alvarlegt rútuslys og kona sem á níutíu þúsund servíettur Alvarlegt rútuslys í Öxnadal Lýðheilsufræðingar segja aukið aðgengi að áfengi alvarlegt mál Elsta skip Samherja kveður Dalvík og heldur til Spánar Refsing manns sem nauðgaði þroskaskertum konum milduð verulega Kostnaður ríkissjóðs vegna Grindavíkur um áttatíu milljarðar Leyfið gefið út í trássi við öryggi sjófarenda Quang Lé laus úr gæsluvarðhaldi en í farbanni Stór skörð að fylla eftir að þúsundir drápust Ofurkarlmennska geti reynst ávísun á hómófóbíu og kvenfyrirlitningu Brenna landnámsbæ til kaldra kola í tilraunaskyni Fimm bíla árekstur á Akureyri Vill úrbætur sem fyrst á Flóttamannaleið Gríska húsinu lokað Byggðakvótakerfið úr sér gengið Kynna 150 aðgerðir í loftslagsmálum Umfangsmikil aðgerð Europol: Netþjónar á Íslandi hýstu hryðjuverkaáróður Leitt ef ríkisstjórn er ekki treystandi í kjarasamningsviðræðum Útlendingafrumvarpið hefur verið samþykkt Ekkert breyst til batnaðar í rekstri borgarinnar Vill losna við lífverði Bjarna úr þinghúsinu Átök á Alþingi og víkingar taka yfir Hafnarfjörð Heimtaði að allir í bænum töluðu íslensku Mikið svifryk í borginni og gosmóða líkleg síðar í dag Vill styðja vantrauststillögu komi hún fram Sjá meira