Woods var á tímabili nánast ósigrandi og er eini kylfingurinn í sögu golfsins sem hefur verið handhafi allra fjögurra risamótanna á sama tíma. Ferill Woods tók hins vegar væna dýfu eftir að upp komst um vafasöm mál í einkalífi hans í lok árs 2009. Eiginkonan fór frá honum og algjör brotlending varð á golfvellinum. Woods hefur unnið sig til baka síðustu tvö ár og nú hillir undir endurkomu Woods sem sigurvegara í risamóti á ný. Síðast fagnaði Woods sigri á Opna bandaríska meistaramótinu fyrir fimm árum, en það var hans 14. sigur í risamóti.
Það sem helst hefur breyst frá síðasta ári er að Woods er heilsuhraustur. Hann hefur verið plagaður af meiðslum síðustu tvö ár sem urðu til þess að Woods gat ekki æft af þeim krafti sem hann er vanur. Í ár hefur Woods verið meiðslalaus og telur hann það vera lykilinn að góðum árangri þessa fyrstu mánuði ársins.

Þegar Woods var upp á sitt besta var enginn kylfingur honum fremri í stutta spilinu. Það er einmitt sá leikur golfsins sem hefur brugðist honum á síðustu árum en ef marka má frammistöðu hans í undanförnum mótum þá hefur Woods farið mikið fram á flötunum.
„Í þeim þremur mótum sem ég hef unnið í ár hef ég púttað mjög vel. Það hjálpar svo sannarlega. Það er eitt að pútta vel á æfingaflötinni heima og annað á sunnudegi í risamóti,“ segir Woods.
Þessi 37 ára kylfingur er einn sá sigursælasti frá upphafi. Markmið Woods er þó að verða sá besti frá upphafi. Til þess að hljóta þann titil verður Woods að ná meti Jacks Nicklaus yfir flesta sigra í risamóti. Nicklaus sigraði í 18 risamótum á mögnuðum ferli og Woods er fjórum sigrum þar á eftir. „Ég vil sigra á fleiri en fjórum risamótum í viðbót – ég vil slá met Nicklaus,“ segir Woods. Það kemur svo í ljós á sunnudag hvort hann verður einu skrefi nær því markmiði.
Sportið á Vísi er komið á Facebook. Vertu með.