Æðstu ráðamenn Bretlands sýna sæstrengnum áhuga Svavar Hávarðsson skrifar 2. nóvember 2013 07:00 Ólafur sagði að rík sátt í samfélaginu væri forsenda þess hvort sæstrengur yrði lagður eða ekki. Mynd/BRÍS
Breski utanríkisráðherrann, William Hague, sýndi lagningu sæstrengs á milli Bretlands og Íslands mikinn áhuga á fundi með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra í september. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segist vita af nokkrum alþjóðlegum fjárfestum sem líta sæstrenginn sem álitlegan fjárfestingarkost. Katrín Jakobsdóttir, þingkona Vinstri grænna, spurði Sigmund Davíð um ýmislegt sem viðkemur hugsanlegri lagningu sæstrengs milli Íslands og Bretlands í opnum fyrirspurnartíma á Alþingi á fimmtudag. Meðal annars fréttaflutning stórblaðsins The Guardian um að Ólafur Ragnar ætlaði í heimsókn sinni til Bretlands að æskja þess að bresk stjórnvöld kæmu að fjármögnun sæstrengsins, ef af yrði. Sú frétt hefur verið borin til baka, að hluta, eins og kom fram í máli forsætisráðherra. Sigmundur sagði það hins vegar „alveg ljóst að það er mjög mikill áhugi á þessum hugmyndum, ekki síst í Bretlandi. Það fór ekki á milli mála á fundum með breskum ráðamönnum fyrir fáeinum vikum. Þeir eru mjög áhugasamir um þetta og þar af leiðandi líklegt að forseti Íslands hafi einnig verið spurður út í það [...]“. Í svörum forsætisráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins kemur fram að Sigmundur Davíð var að vísa til fundar síns 18. september með William Hague og fulltrúum hans úr utanríkisráðuneyti Breta. Hópurinn vildi vita hvernig verkefnið horfði við Íslendingum. Umræðurnar voru um mögulega kosti slíks verkefnis og álitamál sem gætu fylgt því. Fjármögnun var hins vegar ekki rædd. Ólafur Ragnar hefur verið spurður um lagningu sæstrengsins í heimsókn sinni í Bretlandi þessa dagana. Þar á meðal í sjónvarpsviðtali við fréttastofuna Bloomberg. Þar bar forsetinn af sér að hann ætlaði að ræða fjármögnun sæstrengs við breska ráðamenn en sagði hins vegar: „Ég veit af nokkrum alþjóðlegum fjárfestum sem til lengri tíma litið sjá sæstreng sem álitlegan fjárfestingarkost. Ég tel að sæstrengurinn verði mjög áhugavert alþjóðlegt fjárfestingartækifæri,“ sagði Ólafur Ragnar. Síðast í gær ræddi forsetinn um orkumál, og sæstreng, á orkuráðstefnu Bresk íslenska verslunarráðsins og Bloomberg í London. Þar var Ólafur spurður hvort pólitísk sátt væri hérlendis um lagningu sæstrengs. Forsetinn málið ekki hverfast um það heldur ítarlega greiningu á kostum og göllum. Það væri síðan þjóðarvilji sem réði því hvernig málinu yrði lent.
Mest lesið Rífa íþróttahúsið Innlent Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin Erlent McKellen heill á húfi Erlent Samfylkingin ætli ekki að „bara vera með upphrópanir“ Innlent Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins Innlent Brutust inn en gripu í tómt Innlent Lægð nálgast landið Veður Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Innlent Pútín heimsækir Kim Erlent Hyggjast einkavæða ríkismiðil Frakka Erlent Fleiri fréttir Rífa íþróttahúsið Samfylkingin ætli ekki að „bara vera með upphrópanir“ Brutust inn en gripu í tómt Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins Kringlan lokuð til fimmtudags Uppsagnir hjá Icelandair og borgarstjóri í Parísarhjóli Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Sextán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Hvergi betra að búa en á Íslandi Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Skora á Sjúkratryggingar að semja við tvo heimilislækna Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Sjá meira