Birgir Leifur nálægt sæti í móti á Evrópumótaröðinni 20. maí 2013 21:15 Birgir Leifur Hafþórsson lék í úrtökumóti í dag. Getty Images
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, tók þátt í úrtökumóti fyrir Nordea Masters mótið sem fram fer á Evrópumótaröðinni um næstu mánaðamót. Um 100 kylfingar kepptu um þrjú laus sæti í mótinu sem er stærsta golfmót sem haldið er á Norðurlöndum á ári hverju. Birgir Leifur lék á 68 höggum í dag eða fjórum höggum undir pari. Tveir kylfingar léku á 67 höggum og náðu tveimur öruggum sætum en Birgir Leifur fór í bráðabana við fimm aðra kylfinga um eitt laust sæti. Svo fór að Niklas Lemke náði síðasta sætinu eftir bráðabana. Birgir Leifur er eini íslenski kylfingurinn sem hefur unnið sér inn keppnisrétt á Evrópumótaröð karla. Það gerði hann árið 2007 og lék árið á eftir á mótaröðinni áður en hann missti keppnisrétt sinn. Hann mun á morgun hefja keppni í móti á Nordea Golf League mótaröðinni.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira