Sönnun fyrir tilvist Guðs Frosti Logason skrifar 2. desember 2013 12:57 Trúlausi dópistinn brotnaði saman þegar Guð sýndi honum miskun.
Til eru margir sem efast um tilvist Guðs. Sumir ganga jafnvel svo langt að hæðast að honum og smána við hvert tækifæri. En nú er runnin upp stund sannleika og iðrunar. Guð hefur kosið að kveða niður gagnrýnisraddir og sýna trúvillingum í tvo heimana með afar sannfærandi hætti. Myndbandið hér fyrir neðan er sláandi en þar sjáum við lifandi sönnun á mætti bænarinnar. Heróínfíkil sem hagaði sér eins og skepna gagnvart fjölskyldu sinni, vinum og vandamönnum veit ekki sitt rjúkandi ráð þegar hann er bænheyrður. Maðurinn hafði enda ekki gert sig líklegan til þess að vinna til neinna samfélagsverðlauna í aðdraganda kraftaverksins. En það er heldur ekki nauðsynlegt. Það eina sem þú þarft að gera er að fara á hnén og biðja um miskun. Guð fer ekki fram á annað. Hann vill að sér sé sýnd undirgefni og takmarkalaus virðing. Það er allt og sumt. Þetta er gott að hafa í huga þegar komandi jólahátíð gengur í garð. Þegar margir hafa áhyggjur af því að ná jafnvel ekki endum saman. Þá getur borgað sig að fara á hnén og biðja um miskun. Hver veit nema þú fáir hundrað dollara seðil af himnum ofan.
Harmageddon Mest lesið Dóri DNA og stóru málin Harmageddon Strangheiðarlegur og hafður fyrir rangri sök Harmageddon Elvis var góður við móður sína Harmageddon Margrét Tryggvadóttir gerir upp störf sín á Alþingi Harmageddon Nine Inch Nails: Sjálfsmorð með vott af bjartsýni Harmageddon Sagan af Jesú Kristi bara uppspuni eftir allt saman Harmageddon Davíð Oddsson tjáir sig um bankahrunið Harmageddon Sannleikurinn: Nýr aðstoðarmaður forsætisráðherra eykur mistakahæfni Harmageddon Notuðu Twitter aðgang Mike Tyson til að kynna nýja plötu. Harmageddon 20 ár frá Unplugged tónleikum Nirvana Harmageddon