Ákærður fyrir að hrista barn sitt til dauða Stefán Árni Pálsson skrifar 5. desember 2013 13:43 Skýrngarmynd af "shaken baby syndrome“ sem birtist í Fréttablaðinu í mars á þessu ári.
Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni á þrítugsaldri vegna andláts fimm mánaða dóttur hans í mars á þessu ári. Maðurinn er ákærður fyrir að hrista dóttur sína með slíkri hörku að hún lést vegna blæðingar í heila. Umrætt atvik átti sér stað þann 17. mars 2013 þegar maðurinn var einn heima með dóttur sinni. Hann var í kjölfarið úrskurðaður í gæsluvarðhald og í framhaldinu af því úrskurðaður í farbann þann 26. mars. Eftir rannsókn í málinu kom fram bráðabirgðaniðurstaða sem benti til þess að barnið hafi látist af völdum blæðinga í heila eftir svokallað „shaken baby syndrome“. Hér að ofan má sjá mynd þar sem „shaken baby syndrome“ er útskýrt nánar en Fréttablaðið fjallaði um málið í mars. Maðurinn hefur ítrekað verið úrskurðaður í farbann eftir atvikið. Hér að ofan má sjá einkenni „shaken baby syndrome“ á skýringarmynd sem birtist í fréttum Stöðvar 2 í sumar um mál þar sem maður var dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi árið 2002 fyrir að hafa valdið dauða níu mánaða drengs sem var í daggæslu hjá honum. Hann hefur ávallt staðið í þeirri meiningu að hann sé saklaus og vinnur nú að því að hreinsa mannorð sitt.Hér að neðan má síðan sjá myndband þar sem barnadauði af völdum „shaken baby syndrome“ er annars vegar útskýrður.
Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Sjá meira