Snæfell stöðvaði sigurgöngu Haukakvenna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. desember 2013 18:41 Hildur Sigurðardóttir. Mynd/Stefán
Snæfell varð fyrsta liðið til að vinna Haukakonur síðan 30. október þegar Snæfell vann þrettán stiga sigur á Haukum, 88-75, í 13. umferð Dominos-deildar kvenna í körfubolta í Stykkishólmi í kvöld. Chynna Unique Brown átti frábæran leik fyrir Snæfell en hún skoraði 35 stig og tók 10 fráköst. Þrír íslenskir leikmenn komust yfir þrettán stigin, fyrirliðinn Hildur Sigurðardóttir var með 17 stig og 8 stoðsendingar, Hildur Björg Kjartansdóttir var með 13 stig og 11 fráköst og Eva Margrét Kristjánsdóttir skoraði 13 stig og gaf 4 stoðsendingar. Lele Hardy, bandaríski leikmaðurinn hjá Haukum, var með rosalega tölur að vanda en hún skoraði 40 stig, tók 20 fráköst, fiskaði 15 villur og gaf 7 stoðsendingar. Margrét Rósa Hálfdanardóttir var næststigahæst hjá Haukum með 8 stig. Haukaliðið var búið að vinna sex síðustu deildarleiki sína eða síðan liðið tapaði með minnsta mun á móti Snæfelli í lok október. Haukar hefðu náð öðru sæti deildarinnar af Snæfelli með sigri en Snæfell náði Keflavík að stigum með þessum sigri. Snæfell var sterkara framan af leik, vann fyrsta leikhlutann 19-11 og var níu stigum yfir í hálfleik, 40-31. Snæfellsliðið náði mest fimmtán stiga forystu en Haukarnir náðu muninum niður í fimm stig, 74-69, sex mínútum fyrir leikslok. Snæfellsliðið var sterkara á endasprettinum, vann lokakafla leiksins 14-6 og landaði mikilvægum sigri í baráttunni um efstu sætin í deildinni.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Fótbolti Lærisveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Fótbolti Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira