„Málið komið í djúpu kistuna hjá sérstökum saksóknara“ Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 20. nóvember 2013 13:01 Skaðabótamálinu hefur verið frestað um óákveðinn tíma.
Dómari úrskurðaði í hádeginu í dag að skaðabótamáli slitastjórnar Glitnis gegn níu fyrrverandi stjórnendum og helstu eigendum bankans skuli frestað um ótákveðinn tíma meðan rannsókn sérstaks saksóknara er í gangi. Fyrirtaka var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þar sem hart var tekist á en síðasta fyrirtaka í málinu var í gær þar sem slitastjórnin lagði fram beiðni um frestun málsins vegna rannsóknarinnar. Þar var lagt fram bréf frá sérstökum saksóknara þar sem embættið upplýsti um að til rannsóknar væri 15 milljjarða króna víkjandi lán frá Glitni til Baugs í desember 2007.Óánægðir með seinagang Lögmenn níumenninganna voru óánægðir með vinnubrögð slitastjórnarinnar og lögðust gegn því að málinu yrði frestað. Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar fyrrverandi forstjóra Baugs, tók fyrstur til máls og sagði ekkert nýtt komið fram í málinu sem hafa eigi þau áhrif að því skuli frestað. Þá sagði Jakob L. Möller, lögmaður Jóns Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra FL Group, að ekkert komi fram í bréfi sérstaks saksóknara annað en ða rannsókn sé á byrjunarstigi. Hann taldi að málið væri þannig komið í djúpu kistuna hjá embættinu og velti því upp hvort stefndu gætu þá næst vænst frétta af því á árinu 2016. Hann krafðist þess að settur yrði þrýstingur á sérstakan saksóknara að upplýsta um stöðu málsins.Málið áður verið tilkynnt til sérstaks saksóknara Þá spurð Pétur Þór Sigurðsson, lögmaður Björns Inga Sveinssonar, forstjóra Saxbygg, um afdrif tilkynningar slitastjórnarinnar til Tryggingamiðstöðvarinnar frá 5. apríl 2011, sem er meðal ganga sem fram hafa verið lögð í málinu. Í þeirri tilkynningu kemur að sögn þeirra fram að slitastjórnin hafi áður tilkynnt sérstökum saksóknara um lánið og að hún líti svo á að stefndu hafi með því brotið gegn almennum hegningarlögum. Þeir sögðu þá tilkynningu greinilega að engu hafandi, líkt og þeirri síðari sem lögð var fram við fyrirtöku málsins í gær.Lögin eru skýr Hróbjartur Jónatansson, lögmaður slitastjórnarinnar, var ekki viðstaddur fyrirtökuna, en hann mun vera erlendis. Í hans stað mættu lögmennirnir Sveinn Jónatansson, bróðir Hróbjarts, og Jón Þór Ólason. Þeir svöruðu litlu til um afdrif þeirrar tilkynningar og sögðust myndu upplýsa um það á síðari stigum ef þess gerðist þörf. Þá sögðu þeir að lögin séu skýr, málinu bæri að fresta þar sem rannsókn stæði yfir á refsiverðu athæfi sem hefði verulega þýðingu fyrir afdrif skaðabótamálsins. Mótmæli lögmanna stefndu breyttu engu þar um.Þýðing rannsóknar sérsaks saksóknara Sigurbjörn Magnússon, lögmaður Katrínar Pétursdóttur fyrrverandi forstjóra Lýsis, spurði lögmenn slitastjórnarinnar að því hvaða þýðingu það myndi hafa ef málið yrði fellt niður hjá sérstökum saksóknara. Sveinn svaraði því til að eðlilega gæti það haft áhrif í báðar áttir hver afdrif rannsóknar sérstaks saksóknara yrðu, og mögulega umbjóðanda Sigurbjörns í hag. Því var einnig velt upp í fyrirtökunni í dag af hverju málið var ekki tilkynnt fyrr til sérstaks saksóknara, af hverju liðið hafi eitt og hálft ár frá því að því var stefnt og þar til málið var tilkynnt af slitastjórinni til sérstaks saksóknara. Lítið var um svör hjá slitastjórninni við því spurði þá einn lögmannanna dómara að því hvort þeir ættu að bera ábyrgð á fjarveru aðallögmanns stefnanda í málinu.Málinu frestað Að endingu greip dómari inn í umræðuna og sagði hana tæmda. Hann tók sér síðan stutt hlé áður en hann kvað upp sinn úrskurð um að fresta málinu um óákveðinn tíma. Sá úrskurður er kæranlegur til Hæstaréttar innan tveggja vikna.
Mest lesið „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Viðskipti innlent Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Lífið samstarf Milljónagreiðslur til Baldvins Jónssonar stöðvaðar Viðskipti innlent „Algjört siðleysi“ Neytendur Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Viðskipti erlent Danir lengra komnir í að nýta spuna á vinnustöðum Atvinnulíf Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Fleiri fréttir Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma Sjá meira