Harmageddon

Sannleikurinn: Þingmenn stunda kynlíf á salernum Alþingishússins

Andri Þór Sturluson skrifar
15% þingmanna hafa stundað kynlíf í vinnunni.
15% þingmanna hafa stundað kynlíf í vinnunni.
Vefurinn Althingi.is birti í gær óformlega könnun um kynlífsathafnir þingmanna í þinghúsinu og segjast 15% þátttakenda hafa stundað kynlíf í byggingunni.

Um helmingur svarenda segjast hafa íhugað að stunda kynlíf í húsinu en það sé ekki eins spennandi tilhugsun eftir að Guðni hætti á þingi og þriðjungur viðurkenndi að hafa velt því fyrir sér hvaða staður væri heppilegastur fyrir kynlífsathafnir.

Á eftir salernunum er þingflokksherbergi Pírata vinsælast til að stunda samfarir í en þar er oftast enginn og herbergið hefur allar græjur til að stunda kynlíf í gegnum Skype.

Alls tóku 63 manns þátt í könnuninni, 25 konur og 38 karlar, en könnunin var auglýst á umræðuvef Alþingis. Þátttakendur voru á aldrinum 22 til 67 ára.

Þrír þingmenn sem viðurkenndu að hafa stundað kynlíf í Alþingishúsinu gáfu sig fram í viðtal undir nafnleynd en í öllum þremur tilvikum hafði salerni orðið fyrir valinu sem vettvangur kynlífsins. Einn þingmaðurinn hafði á orði að það hefði gengið erfiðlega að athafna sig á salerninu, „mjög þröngt og erfitt að skipta um stellingar. En sem betur fer var ég bara einn“.

Margir þingmenn dvelja oft í húsinu við vinnu langt fram á kvöld. Einn þátttakendanna, sem stundað hafði kynlíf innan veggja hússins, sagði að með því að nýta tækifærið og stunda samfarir þar hefði verið hægt að ná sáttum í hinum ýmsu deilumálum þegar fólk og flokkar takast á. „Það myndast oft gríðarleg spenna milli manna þegar þingmenn takast á í þingsal. Þá er gott að geta losað um þá spennu inni á salerninu en einnig er gott að geta gert mönnum greiða þar inni í skiptum fyrir stuðning í erfiðum málum.“





Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu  en þar er sjaldgæft að einhver verði heppinn.








×