Viðskipti innlent

Dregur úr hagnaði Marels

Haraldur Guðmundsson skrifar
Theo Hoen, forstjóri Marel, segir að afkoma fyrirtækisins sé „viðunandi í ljósi markaðsaðstæðna“.
Theo Hoen, forstjóri Marel, segir að afkoma fyrirtækisins sé „viðunandi í ljósi markaðsaðstæðna“. Mynd/Anton Brink.
Hagnaður Marels á þriðja ársfjórðungi þessa árs nam sex milljónum evra, eða um 996 milljónum íslenskra króna, samanborið við 8,4 milljóna evra hagnað árið 2012.

Tekjur fyrirtækisins á fjórðungnum námu 156,9 milljónum evra og lækkuðu um 4,5 prósentustig miðað við sama tímabil árið 2012 þegar tekjurnar voru 164,3 milljónir evra.

Rekstrarhagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 19,5 milljónir evra, samanborið við 20,5 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi síðasta árs.

Í tilkynningu frá Marel segir að afkoma fyrirtækisins á fyrstu níu mánuðum ársins endurspegli krefjandi markaðsaðstæður og sýni hægari bata en fyrirtækið hafði áður gert ráð fyrir.

„Tekjur fyrstu níu mánaða ársins lækka um 7,9% miðað við sama tímabil fyrra árs og námu 493,4 milljónum evra. [...] Markaðsaðstæður eru enn krefjandi en batamerki eru í sjónmáli. Á meðan  jákvæð teikn eru í Norður-Ameríku er ástandið í Evrópu enn viðkvæmt. Mismunandi aðstæður ríkja á nýmörkuðum en langtímahorfur eru góðar," segir í tilkynningunni.

Fyrirtækið segist búast við því að tekjur ársins 2013 muni lækka um sex til átta prósent milli ára.

Theo Hoen, forstjóri Marels, segir í tilkynningunni að afkoma fyrirtækisins sé „viðunandi í ljósi markaðsaðstæðna“.

„Viðsnúningur hefur verið hægari en við höfum áður séð og höfðum búist við. Skortur á stórum verkefnum hefur neikvæð áhrif á tekjumyndun. Við erum þess fullviss að fjárfestingaþörf sé að byggjast upp og þegar markaðsaðstæður batna þá erum við í stakk búin til að mæta eftirspurninni. Við sáum þetta gerast árið 2009 þegar matvælaframleiðendur héldu að sér höndum og frestuðu fjárfestingum vegna efnahagslegrar óvissu. Ári seinna þegar aðstæður bötnuðu braust þessi uppsafnaða fjárfestingaþörf út af krafti þar sem undirliggjandi spurn eftir próteini hafði haldið áfram að vaxa. Þannig er einnig staðan nú. Á meðan nýtum við tímann til að veita viðskiptavinum okkar aukna og betri þjónustu í gegnum sölu- og þjónustunet okkar. Við erum bjartsýn á framtíðarhorfurnar og munum halda áfram að viðhalda sölu- og þjónustuneti okkar ásamt því að viðhalda fjárfestingu í nýsköpun og markaðssókn.  Á sama tíma leggjum við áfram ríka áherslu á rekstrarhagkvæmni,“ segir Theo í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×