Tóku upp klámmyndband fyrir utan kirkju hommahatara Frosti Logason skrifar 7. október 2013 14:43
Pönksveitin Get Shot! kemur frá Kalíforníu og er ein sóðalegasta pönksveit heims ef marka má meðlimi sveitarinnar. Get Shot! er enda fræg fyrir margt annað en snyrtimennsku og kurteisi. Sveitin opnaði klámssíðu á netinu fyrr á þessu ári og hreykir sér af því að vera fyrsta hljómsveitin til þess að framkvæma slíkt uppátæki. Nýverið tók svo bassaleikona sveitarinnar upp á því að fróa sér á túninu fyrir framan Westboro Babtist Church söfnuðinn sem frægur er fyrir hatur sitt á samkynhneigðum, tók allt upp á myndband og hlóð því svo á vefinn. „Phelps fjölskyldan og babtista kirkjan þeirra í Westboro er fáránleg og gerir ekkert nema að breiða út hatur og skapa illindi,“ segir Laura Lush í fréttatilkynningu. „Sem tvíkynhneigð kona og bassaleikari í fáránlegri pönksveit hef ég ákveðið að breiða út klof mitt og skapa umtal.“ Myndbandið var gert fáanlegt á heimasíðu sveitarinnar og samkvæmt talsmönnum síðunnar hefur einhver frá kirkjunni verið duglegur við að skoða innihald hennar. „Einhver á IP tölunni ykkar var inn á síðunni okkar í yfir 40 mínútur, sem er margfalt lengri tími heldur en myndbandið sem var tekið á túninu ykkar.“ Sagði í orðsendingu frá Get Shot! í gær. Enn sem komið er hafa engin viðbrögð fengist frá Westboro babtista söfnuðinum. En hljómsveitin Get Shot! segist ætla að snúa aftur á túnið hjá þeim til að taka upp meira klám á næstu mánuðum. Hér fyrir neðan má heyra brot af tónlist sveitarinnar ásamt smekklegum ljósmyndum úr safni þeirra.
Harmageddon Mest lesið Segir þögult verðsamráð ríkja á matvörumarkaði Harmageddon Enginn vill heyra nýja tónlist frá Smashing Pumpkins Harmageddon Guðmundi Steingríms bolað út úr sínu eigin máli Harmageddon Íslendingurinn sem er að slá í gegn í Dexter Harmageddon Sparperuruglið í Vigdísi Hauks Harmageddon Sannleikurinn: Fjölga þarf lögreglukonum til að kynferðislegt áreiti dreifist á fleiri konur Harmageddon Pepsi Max: Kontinuum halda toppsætinu Harmageddon Er endurkoma Oasis í kortunum? Harmageddon Davíð Oddsson tjáir sig um bankahrunið Harmageddon Sannleikurinn: Stofnfundur félags fólks með ofvirkni fór úr böndunum: Stofnuðu 7 önnur félög Harmageddon
Sannleikurinn: Fjölga þarf lögreglukonum til að kynferðislegt áreiti dreifist á fleiri konur Harmageddon
Sannleikurinn: Stofnfundur félags fólks með ofvirkni fór úr böndunum: Stofnuðu 7 önnur félög Harmageddon
Sannleikurinn: Fjölga þarf lögreglukonum til að kynferðislegt áreiti dreifist á fleiri konur Harmageddon
Sannleikurinn: Stofnfundur félags fólks með ofvirkni fór úr böndunum: Stofnuðu 7 önnur félög Harmageddon