Þorgerður Katrín segir Íslendinga verða að hætta tala niður listir og menningu Máni Pétursson skrifar 24. september 2013 18:21 "Við verðum að hætta að tala niður listir og menningu,“ sagði Þorgerður Katrín í
Harmageddon
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fyrrverandi menntamálaráðherra og dómari í Ísland Got talent segir að eina ástæðan fyrir því að hún samþykki að vera í sjónvarpsþætti sem ber jafn málfarslega vitlaust nafn og þessi tiltekni þáttur, sé virðing hennar fyrir höfundarréttinum. Bendir hún á að þátturinn sé jú höfundarverk Simon nokkurs Cowells og það sé ósk höfundarins að þátturinn beri alls staðar sama nafn, hversu vitlaust sem það kann að hljóma. Hún viðurkennir að margir hafi ráðlagt henni að taka ekki að sér þetta starf en hún hafi einfaldlega ekki verið sammála, enda spennt fyrir því að vinna með öllu því góða fólki sem að verkefninu kemur. Aðspurð hvort verðlaunaféið í þættinum verði eina leiðin fyrir listmenn framtíðarinnar til þess að afla sér tekna eftir að niðurskurðahnífur fyrrum flokksfélaga hennar hefur gengið yfir menninga og listalíf landsins sagði Þorgerður Katrín: „Menning og listir eru ekki undanskilin niðurskurði hinsvegar verður fólk að hafa það í huga að erlendir ferðamenn koma hingað til lands í miklu magni vegna íslenskrar menningar.“ Þorgerður sagði Björk vera frábæran tónlistamann og að Sinfóníuhljómsveit Íslands væri á heimsmælikvarða. „Listamenn verða samt, ásamt ríkinu, að endurskoða að mínu mati staðnað úthlutunarkerfi,“ sagði Þorgerður og bætti við: „Við eigum að hætta að tala niður til menningar og lista eins og það sé einhver afgangsstærð. Þetta skiptir okkur gífurlega miklu máli sem þjóð.“ Viðtalið við Þorgerði má heyra hér að ofan.
Harmageddon Ísland Got Talent Mest lesið Afhverju niðurgreiðum við bílastæði meira en leikskóla? Harmageddon Beck með nýja plötu. Harmageddon Kanye West biður öryggisverði um að fjarlægja tónleikagest Harmageddon Metallica ætlar að selja riff á Ebay Harmageddon Trúleysi gerir tónlist góða Harmageddon Semja ný lög í sumarbústað Harmageddon Púlsinn 19.ágúst 2014 Harmageddon Engum skotum hleypt af byssu Sævars fyrr enn eftir að lögregla mætti á vettvang Harmageddon Margrét Tryggvadóttir gerir upp störf sín á Alþingi Harmageddon "Ríkisstjórnin á að segja af sér“ Harmageddon