Bjargaði McConaughey um munntóbak Jakob Bjarnar skrifar 16. september 2013 13:31 McConaughey er sólginn í munntóbakið og vill helst sænska hágæðatuggu í vörina.
Hannes Friðbjarnarson, trymbill í hljómsveitinni Buff, lenti í því í síðustu viku að bjarga kvikmyndastjörnunni Matthew McConaughey um munntókbak. Samkvæmt heimildum Vísis gekk það að óskum. McConaughey er staddur hér á landi við tökur á kvikmynd leikstjórans Nolan, Interstellar, ásamt mörgum öðrum stórstjörnum kvikmyndanna. Tökur fara meðal annars fram á Svínafellsjökli. Hannes mun hafa verið beðinn um að hlaupa undir bagga, í bókstaflegri merkingu, og bjarga McConaughey um munntóbak. Sænskt og kolólöglegt. Stjarnan sá einhvern úr teymi Saga Film brúka slíkt og vakti það upp löngun; McConaughey smellti bagga í vörina og vildi meira. Þeim sem voru á settinu kom þetta hreint ekki á óvart því McConaughey er frá Texas og að þeirra mati alvöru maður. Einhvern veginn æxlaðist það að Hannes, trymbillinn geðþekki, fékk þetta verkefni í hendurnar. Hannes þverneitaði að tjá sig um málið í samtali við Vísi. Vísaði til þess að þó hann væri ekki að vinna við myndina, þá væri honum vel kunnugt um þagnarskyldu sem hvíldi á öllum þeim sem nærri kæmu og hann ætlaði ekki að rugga neinum bátum fyrir eins og eina tóbakstuggu eða tvær.
Mest lesið Alvarlegt rútuslys í Öxnadal Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Tónlistarmaðurinn Róbert Örn er fallinn frá Innlent Losuðu stúlku úr „prísund“ við Háskólabíó Innlent Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Innlent Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Vill losna við lífverði Bjarna úr þinghúsinu Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira