Sala á hlut myndi skila 63 milljörðum í ríkissjóð Þorbjörn Þórðarson skrifar 14. ágúst 2013 18:30 Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands.
Miðað við bókfært eigið fé Landsbankans myndu fást 63 milljarðar króna fyrir 28 prósenta hlut ríkisins í bankanum en ríkissjóði er heimilt að selja hann á næsta ári. Forstjóri Kauphallarinnar segir að sala á hlut ríkisins myndi styrkja atvinnulífið og býst við mikilli eftirspurn eftir þessum bréfum. Ríkissjóður heldur á 97,8 prósenta hlut í Landsbankanum. Samkvæmt lögum um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum er ríkissjóði heimilt að selja 28 prósenta hlut í bankanum á næsta ári. Fyrrum fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, hafði viðrað þá hugmynd að þetta yrði gert gegnum Kauphöll Íslands. Skilyrðin fyrir sölunni eru þau að Bankasýslan þarf að mæla með henni og heimild þarf að vera fyrir henni í fjárlögum.Mikil eftirspurn eftir bréfum nýskráðra félaga Það verður að teljast líklegt að talsverð eftirspurn verði eftir bréfum Landsbankans í Kauphöllinni ef salan á 28 prósenta hlut ríkisins raungerist. Vegna takmarkaðra fjárfestingarkosta í hagkerfi sem er afgirt með gjaldeyrishöftum hefur mikil eftirspurn verið eftir bréfum nýskráðra félaga í Kauphöllinni og margir hagnast vel á hlutabréfaviðskiptum. Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands, segir ekkert því til fyrirstöðu að taka hlutabréf ríkisins í Landsbankanum til skráningar. Hann segir að ef stjórnvöld (Bankasýsla ríkisins / fjármálaráðuneytið innsk.blm) hefðu samband við Kauphöllina í þessu tilgangi á morgun væri hægt að skrá bréfin á fyrri hluta næsta árs. „Ég held að þetta myndi styrkja markaðinn allverulega og henta mjög vel," segir Páll.Er ekki æskilegt að ríkið selji hlutabréfin í gegnum Kauphöll, þar sem það er eitt gagnsæjasta söluferli sem þekkist hér á landi? „Það held ég. Ég held að það sé mjög æskilegt að nokkur hluti þessara banka komist í hendur almennra fjárfesta. Ég held að það sé gott fyrir atvinnulífið. Jafnframt tel ég að það sé leið fyrir ríkið að fá sem hæst verð fyrir Landsbankann," segir Páll. Hann segir að það sé uppsöfnuð fjárfestingarþörf á markaðnum.Almenningur hefur sýnt hlutabréfamarkaði aukinn áhuga „Við sjáum að það eru stórir aðilar sem eru enn með mjög lítinn hluta sinna eigna í íslenskum félögum. Þá á ég við lífeyrissjóði og fjárfestingarsjóði sem eru með 3000 milljarða í sinni umsjá en eru með einungis lítinn hluta þessa fjár í íslenskum hlutabréfum. Þar að auki hefur almenningur sýnt hlutabréfamarkaði aukinn áhuga. Þannig að ég held að það séu allar horfur á því að Landsbankanum yrði sýndur áhugi." Bókfært virði eiginfjár Landsbankans nemur rúmlega 225 milljörðum króna samkvæmt skýrslu Bankasýslu ríkisins frá því fyrr á þessu ári. (Sjá bls. 21). Sala á 28 prósenta hlut ætti samkvæmt þessu að skila ríkissjóði 63 milljörðum króna. Ekki náðist í Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra í dag.
Mest lesið Skamma og banna Play að blekkja neytendur Neytendur Isavia braut lög á Keflavíkurflugvelli Neytendur Nýtt trend: Sami stjórnandinn að vinna fyrir mörg fyrirtæki Atvinnulíf Vaka stýrir Collab Viðskipti innlent Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Viðskipti erlent Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Viðskipti innlent Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Sjá meira